Um 86 milljónum úthlutað úr Lýðheilsusjóði
26. mars 2026
Athöfn þar sem úthlutað var styrkjum úr Lýðheilsusjóði var haldin fimmtudaginn 26. mars í húsakynnum embættis landlæknis.

Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, úthlutaði úr sjóðnum til 112 verkefna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum þó að sérstök áhersla hafi verið lögð á lýðheilsuáskoranir ungmenna í ár. Þá var lögð áhersla á að styrkja aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu og félagsfærni ásamt því að draga úr einmanaleika. Að auki fengu verkefni með áherslu á áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, næringu, hreyfingu og kynheilbrigði einnig styrk. Við mat á umsóknum fyrir árið 2026 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.
Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust. Embætti landlæknis annast daglega umsýslu og reikningshald Lýðheilsusjóðs.
Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu og í lýðheilsustefnu heilbrigðisráðuneytisins.
