Tölur um sjálfsvíg - fyrri hluti árs 2025
24. mars 2026
Embætti landlæknis hefur gefið út bráðabirgðatölur um sjálfsvíg fyrstu sex mánuði ársins 2025.

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis, þar sem vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60-X84) er skráður sem dánarorsök á dánarvottorð.
Fjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði ársins 2025 var 17, eða 4,3 á hverja 100.000 íbúa. Til samanburðar voru að meðaltali 21 sjálfsvíg fyrstu 6 mánuði áranna 2020-2024, eða 5,6 á hverja 100.000 íbúa. Þessi bráðabirgðatala gefur til kynna lækkun en tölur um sjálfsvíg sveiflast milli ára og því er mikilvægt að túlka ekki 6 mánaða bráðabirgðatölur sem vísbendingu um samdrátt á tíðni sjálfsvíga.
Ef tíðni fyrir heil ár og árabil eru skoðuð þá dóu að meðaltali 43 einstaklingar í sjálfsvígi á árabilinu frá 2020–2024, eða 11,5 á hverja 100.000 íbúa. Á fimm ára tímabili þar á undan, 2015-2019, létust árlega að meðaltali 38 einstaklingar í sjálfsvígi, eða 11,1 á hverja 100.000 íbúa og fyrir árabilið 2010-2014 dóu að meðaltali um 41 einstaklingur eða 12,8 á hverja 100.000 íbúa.
Af þessu má sjá að vegna fámennis þjóðarinnar þá geta litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Þetta er ástæðan fyrir því að heppilegra er að skoða meðaltal nokkurra ára frekar en stök ár þegar horft er á tíðni sjálfsvíga á Íslandi.
Miðstöð sjálfsvígsforvarna hefur gefið út ráðleggingar um ábyrga umfjöllun um sjálfsvíg í fjölmiðlum sem eru aðgengilegar á vef embættis landlæknis og á vef Blaðamannafélags Íslands.
Frekari upplýsingar
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri Lífsbrúar - miðstöðvar sjálfsvígsforvarna, gudrun.j.gudlaugsdottir@landlaeknir.is
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is
Hvar er hjálp að fá?
Þeim sem glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Píeta símann s. 552-2218, Upplýsingasíma heilsugæslunnar s. 1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s. 1717 og netspjallið 1717.is.
Þeim sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar s. 1700, netspjallið heilsuvera.is, og á Píeta símann s. 552-2218.