Tillögur að breytingum á reglugerð um Skráargatið til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda
17. febrúar 2026
Birtar hafa verið tillögur að breytingum á reglugerð um Skráargatið í Samráðsgátt stjórnvalda.

Skilgreiningar fyrir Skráargatið eru endurskoðaðar reglulega. Síðasta endurskoðun fór fram árið 2021. Viðmiðin eru þau sömu á öllum Norðurlöndunum þar sem merkið er í notkun. Þessi uppfærsla byggir á Norrænum næringarráðleggingum (NNR) sem gefnar voru út árið 2023.
Í þessari endurskoðun á reglugerð um Skráargatið er lagt til að leyfilegt saltmagn í flestum fæðuflokkum verði lækkað og kröfur um hlutfall heilkorna og trefja í brauði verði auknar. Enn fremur er lagt til að heimila að merkja allar tegundir fræja - nema sólblómafræ og hörfræ - með Skráargatinu.
Að auki er lagt til að breyta kröfunni um leyfilegt fituinnihald í fæðuflokki 6 (Korn og morgunkorn), þannig að aðeins sé krafa um magn á mettaðri fitu. Sömuleiðis að fræ og hnetur skuli ekki teknar með í útreikningi á magni heilkorna.
Jafnframt er lagt til að fjarlægja kröfu um leyfilegt magn sykurs í fæðuflokki 24 b (Hakkað kjöt) sem og að fjarlægja kröfuna um leyfilegt hámarksmagn af mettaðri fitu í fæðuflokki 3 (Hnetur).
Lagt er til að framangreindar breytingar öðlist gildi 1. apríl 2027 en þó verði framleiðsla og merking matvæla í samræmi við eldri reglugerð heimil til 1. október 2028. Þá verði heimilt að dreifa matvælum framleiddum og merktum fyrir 1. október 2028, þar til birgðir eru uppurnar.
Óskað er eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um drög reglugerðarinnar en umsagnarfrestur er til og með 30. mars næstkomandi.
Frekari upplýsingar
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri næringar
holmfridur.thorgeirsdottir@landlaeknir.is