Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.2.–30.3.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-45/2026

Birt: 16.2.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Atvinnuvegaráðuneytið

Landbúnaður

Drög að reglugerð um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneyti kynnir til samráðs drög að reglugerð um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla.

Nánari upplýsingar

Skráargatið er samnorrænt opinbert merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi samsetningu næringarefna, þ.e. hollari fita, minni sykur og salt og meira að trefjum og heilkornum. Markmiðið með Skráargatinu er að neytendur geti á einfaldan hátt valið hollari matvöru, auk þess hvetur það matvælaframleiðendur til að þróa hollari vörur og stuðla þannig að auknu úrvali af hollum matvælum á markaði.

Árið 2023 voru gefnar út endurskoðaðar Norrænar næringarráðleggingar (NNR) sem er vísindalegur grunnur fyrir ráðleggingar um matarræði og næringarefni hér á landi, m.a. um orku, fitu, kolvetni, prótein, salt, sykur og trefjar. Á grundvelli endurskoðaðra næringarráðlegginga eru lagðar til breytingar á núgildandi reglugerð nr. 333/2021.

Í drögum reglugerðarinnar er lagt til að leyfilegt saltmagn í flestum fæðuflokkum verði lækkað og kröfur um hlutfall heilkorna og trefja í brauði verði auknar. Ennfremur er lagt til að heimila að merkja allar tegundir fræja, að undanskildum sólblómafræum og hörfræum, með Skráargatinu. Að auki er lagt til að breyta kröfunni um leyfilegt fituinnihald í fæðuflokki 6 (Korn og morgunkorn), þannig að aðeins sé krafa um magn á mettaðri fitu. Sömuleiðis að fræ og hnetur skuli ekki teknar með í útreikningi á magni heilkorna. Jafnframt er lagt til að fjarlægja kröfu um leyfilegt magn sykurs í fæðuflokki 24 b (Hakkað kjöt) sem og að fjarlægja kröfu um leyfilegt hámarks magn af mettaðri fitu í fæðuflokki 3 (Hnetur).

Lagt er til að framangreindar breytingar öðlist gildi 1. apríl 2027 en þó verði framleiðsla og merking matvæla í samræmi við eldri reglugerð heimil til 1. október 2028 og þá verði heimilt að dreifa matvælum framleiddum og merktum fyrir 1. október 2028 þar til birgðir eru uppurnar.

Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um drög reglugerðarinnar en umsagnarfrestur er til og með 30. mars nk.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa landgæða og dýraheilsu

atrn@atrn.is