Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Talnabrunnur – 4. tölublað 2026

11. júní 2026

Í þessu tölublaði Talnabrunns er fjallað um bið eftir þverfaglegu mati vegna gruns um athyglisbrest með ofvirkni og/eða einhverfu hjá Geðheilsumiðstöð barna.

Biðtími barna eftir geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi er langur og getur haft veruleg neikvæð áhrif á líðan og þroska þeirra. Jákvætt er að bið eftir þjónustu hjá barna- og unglingageðdeild (BUGL), þar sem börn með flóknasta og alvarlegasta vandann fá þjónustu, hefur styst til muna undanfarin ár og er nú innan viðmiða embættis landlæknis um bið eftir heilbrigðisþjónustu. Hins vegar hefur bið eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna lengst mikið á sama tíma sem bendir til að vandinn hafi að einhverju leyti færst milli þjónustuaðila.

Unnið er að umbótum með það að markmiði að bæta aðgengi, einfalda þjónustuleiðir og tryggja jafna þjónustu um land allt. Embætti landlæknis leggur áherslu á að hraða þessum breytingum til að mæta þörfum barna með geðrænan vanda.

Greinarhöfundar eru Agnes Gísladóttir, Henný Hraunfjörð og Karl Reynir Einarsson.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is