Fara beint í efnið

Sýklalyfjadagur - málþing 16. nóvember nk.

6. nóvember 2023

Dagurinn 18. nóvember er sérstaklega helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC). Sama dag hefst vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Evrópudagur vitundarvakningar. Mynd fyrir frétt

Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsmenn og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum.

Orsakir sýklalyfjaónæmis eru margvíslegar en óvarleg notkun sýklalyfja hjá bæði mönnum og dýrum er ein sú mikilvægasta. Vísbendingar eru um að notkun sýklalyfja hjá mönnum utan sjúkrahúsa fari vaxandi á ný hérlendis eftir að hafa dregist saman í COVID-19 faraldrinum, sjá nýlega ársskýrslu um sýklalyfjanotkun og -næmi á Íslandi 2022.

Í tilefni af evrópska sýklalyfjadeginum (European Antibiotic Awareness Day) mun sóttvarnalæknir halda málþing um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi fimmtudaginn 16. nóvember kl. 13:00–15:00 í húsnæði Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu í salnum á Loftinu, Álfabakka 16, sjá dagskrá.

Hámarksfjöldi í sal verður 50 manns en einnig verður hægt að tengjast fjarfundi með Teams.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 15.11.2023með tölvupósti á netfangið juliana.hedinsdottir@landlaeknir.is. Vinsamlegast takið fram hvort þið hyggist mæta á staðinn eða hlusta á fundinn í streymi. Hlekkur til að tengjast fundinum verður sendur til þeirra sem hafa skráð sig, þegar nær dregur.

Sjá nánar dagskrá málþings.

Sóttvarnalæknir