Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Skylt verður að færa stafræna sjúkraskrá frá 1. desember

11. nóvember 2026

Embætti landlæknis minnir á að þann 1. desember næstkomandi taka að fullu gildi lög 81/2025 um margvíslegar breytingar á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009.

Í frétt sem embættið birti þann þann 17. desember 2025 má sjá yfirlit yfir helstu breytingar sem urðu við gildistöku laganna.

Markmið breytinganna er að auka skilvirkni í heilbrigðisþjónustu, styðja við stafræna þróun og bæta öryggi sjúklinga.

Ein helsta breytingin er sú að frá 1. desember næstkomandi verður skylt að færa stafræna sjúkraskrá. Embætti landlæknis hvetur alla veitendur heilbrigðisþjónustu til að bregðast við framangreindu og tryggja örugga stafræna skráningu sjúkraskrárgagna í sjúkraskrárkerfi sem uppfyllir kröfur sem gerðar eru um öryggi gagna og aðgangsstýringu.

Hvorki embætti landlæknis né Stafræn heilsa samþykkja eða votta einstök sjúkraskrárkerfi eða halda skrá yfir samþykkt kerfi eða kerfisveitur. Það er á ábyrgð ábyrgðaraðila sjúkraskráa að velja kerfi og kerfisveitu og meta hvort þau uppfylli þær kröfur sem gerðar eru. Tilkynna skal embætti landlæknis um hvaða kerfi er notast við og ber veitanda heilbrigðisþjónustu að ábyrgjast að það uppfylli kröfur sem til slíkra kerfa eru gerðar.

Á vef embættis landlæknis og Stafrænnar heilsu má finna leiðbeiningar um stafræn sjúkraskrárkerfi ásamt gátlista fyrir ábyrgðaraðila með 39 spurningum til kerfisveitu/þjónustuaðila auk fjögurra sniðmáta að öryggiskerfi fyrir smærri starfsstofur.

Gátlistinn er til þess að ábyrgðaraðilar sjúkraskráa geti sjálfir aflað og metið upplýsingar um sjúkraskrárkerfi. Gert er ráð fyrir að hægt sé að fullnægja þeirri skyldu með því að vísa til upplýsinga frá kerfisveitu, sem er þeim jafnframt hvatning til að hafa upplýsingar um öryggismál á reiðum höndum.

Frekari upplýsingar
Þórgunnur Hjaltadóttir, sviðsstjóri rekstrar og öryggis