Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Rafrænt námskeið fyrir kennara í kennslu geðræktarefnisins Vinir Zippýs 24. september

2. september 2026

Rafrænt námskeið verður haldið fyrir kennara í leik- og grunnskólum í kennslu geðræktarefnisins Vinir Zippýs fimmtudaginn 24. september næstkomandi, klukkan 10:00 –16:00. Námskeiðið verður haldið á Teams og er kennurum að kostnaðarlausu en fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Skráningarfrestur er til og með 14. september. Að loknu námskeiði fá kennarar aðgang að námsefninu sem er einkum ætlað til kennslu á yngsta stigi grunnskóla en hefur einnig verið nýtt hér á landi meðal elstu barnanna í leikskólum.

Vinir Zippýs er námsefni sem miðar að því að efla félags- og tilfinningafærni barna, meðal annars getu til að skilja og tjá eigin tilfinningar, eiga góð samskipti, finna heppilegar lausnir á vanda og takast á við mótlæti. Námsefnið er byggt upp af sex námsþáttum sem hver inniheldur fjórar kennslustundir. Kennslustundunum er lýst með nákvæmum hætti í vönduðum kennslugögnum sem fylgja námskeiðinu.

Námsefnið hefur verið meðal þess efnis sem mest er nýtt til að efla félags- og tilfinningafærni yngri barna í grunnskólum á Íslandi en það hefur ekki verið fáanlegt um nokkurt skeið. Efnið hefur nú verið endurútgefið og býður embætti landlæknis því kennurum námskeið og aðgang að efninu að nýju.

Því miður er orðið fullt á námskeiðið og ekki hægt að taka við fleiri skráningum

Frekari upplýsingar
Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðrækar
sigrun.danielsdottir@landlaeknir.is