Öndunarfærasýkingar – Vikur 15-17 árið 2025
30. apríl 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 17 árið 2025 (7. apríl– 27. apríl 2025).
Staðan á Íslandi
Fjöldi inflúensugreininga hefur farið fækkandi sem og greiningar á RS veirusýkingu. Í viku 17 bar á aukningu á COVID-19 greiningum og einnig legum á Landspítala með COVID-19. Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar átta vikur en tilfelli Mycoplasma halda áfram að greinast.
Inflúensa, RS veirusýking og COVID-19
Greiningum á inflúensu hefur farið fækkandi en í viku 17 greindust sjö einstaklingar. Þar af voru tveir með inflúensutegund A(pdm09), tveir með tegund A(H3) og þrír með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en einn einstaklingur var undir fimm ára aldri, tveir voru í aldurshópnum 5-14 ára, tveir voru 15-64 ára og tveir voru 65 ára eða eldri. Sami fjöldi greindist með inflúensu í viku 16 en í viku 15 greindist 21 einstaklingur.
Einn einstaklingur var inniliggjandi á Landspítala með inflúensu í viku 17 og var sá á aldrinum 5-14 ára. Í viku 16 lá einnig einn inni og var hann í aldurshópnum 65 ára og eldri. Í viku 15 lágu átta einstaklingar á Landspítala með inflúensu, þar af fimm í aldurshópnum 65 ára og eldri og þrír á aldrinum 15-64 ára.
Lítið hefur greinst af RS veirusýkingu undanfarnar vikur en í viku 17 greindust fjórir einstaklingar. Af þeim voru tveir undir eins árs aldri, einn á aldrinum 15-64 ára og einn 65 ára eða eldri. Einn á aldrinum 15-64 ára lá á Landspítala með RS veirusýkingu í viku 17 en enginn hafði þá legið á spítalanum með RS veirusýkingu í fimm vikur.
Átta einstaklingar greindust með COVID-19 í viku 17, þar af sjö í aldurshópnum 65 ára og eldri. Þetta er mesti vikulegi fjöldi sem greinst hefur með COVID-19 frá upphafi ársins 2025. Afar fáir hafa legið á Landspítala með COVID-19 frá áramótum (0-1 í viku) en í viku 17 lágu fjórir einstaklingar inni, allir í aldurshópnum 65 ára og eldri.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Fjöldi sem greinist með öndunarfæraveirur, aðrar en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, hefur sveiflast frá lokum árs 2024. Í viku 15 greindust fleiri en höfðu greinst nokkrar vikur þar á undan og greindust flestir í þeirri viku með rhihoveiru (kvef) og parainflúensu. Færri greindust í vikum 16 og 17, en áfram stærstur fjöldi með rhinoveiru og parainflúensu. Fjöldi öndunarfærasýna sem rannsökuð eru í viku hverri hefur fækkað undanfarnar tvær vikur en í viku 17 voru 145 sýni rannsökuð. Hlutfall jákvæðra sýna hefur sveiflast á bilinu 35-50% undanfarnar vikur.
Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar átta vikur. Greiningum á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) hefur fækkað frá áramótum en en vikulegur fjöldi sveiflast enn. Í viku 17 greindust þrír einstaklingar með Mycoplasma.
Staðan í Evrópu
Tíðni greininga á öndunarfærasýkingum hefur lækkað í ríkjum ESB/EES en faraldrar inflúensu og RS veirusýkingar geisa þó enn í einhverjum löndum.
Inflúensufaraldur náði almennt hámarki í viku 6 þessa árs og er nú lítið um inflúensu í flestum ríkjum.
Faraldur RS veirusýkingar náði heilt yfir hámarki í viku 52 ársins 2024 en áfram er þó nokkuð um greiningar.
Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er enn lág.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Almennar sóttvarnir, við minnum á að:
Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.
Stefnt er að útgáfu næstu samantektar fimmtudaginn 15. maí nk.
Sóttvarnalæknir