Öndunarfærasýkingar – Vika 49 2024
12. desember 2024
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 49 (2.–8. desember 2024).
Í viku 49 greindust 46 einstaklingar með RS veirusýkingu, sem er sambærilegur fjöldi og í síðustu viku. Af þeim var helmingur yngri en þriggja ára og 16 voru í aldurshópnum 65 ára og eldri. 25 einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS veirusýkingu, þar af átta börn yngri en þriggja ára og 14 einstaklingar í aldurshópnum 65 ára og eldri.
Inflúensugreiningum fjölgaði milli vikna en 19 einstaklingar greindust í viku 49, átta með inflúensutegund A(H3) og 11 með tegund A(pdm09). Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en sjö einstaklingar voru í aldurshópnum 65 ára og eldri. Einn í aldurshópnum 15–64 ára lá á legudeild á Landspítala með inflúensu. Að auki voru 11 einstaklingar á bráðamóttöku í Fossvogi og bráðamóttöku barna með inflúensu í vikunni.
Í viku 49 greindust tveir einstaklingar COVID-19, báðir í aldurshópnum 15–64 ára. Enginn lá inni á Landspítala með COVID-19 þessa viku.
Tæpur helmingur sem greindist með öndunarfæraveirusýkingu, aðra en COVID-19, inflúensu eða RS veirusýkingu, greindist með rhinoveiru (kvef). Þá hefur fjöldi greininga á kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 og parainflúensu aukist á liðnum vikum. Öndunarfærasýnum sem fara í veirugreiningu í viku hverrri heldur áfram að fjölga. Hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda sýna hækkar enn og var rúm 50% í viku 49.
Vikulegur fjöldi klínískra Mycoplasma greininga (greininga læknis óháð rannsóknarniðurstöðu) hefur verið talsvert meiri en á sama tíma síðasta vetur en nálgast nú þann fjölda sem greindist um og uppúr áramótum 2023–2024 þegar greiningum fór skarpt fjölgandi. Greiningum á kíghósta hefur fækkað frá því að faraldur braust út fyrr á þessu ári og greindist enginn í viku 49.
Staðan í Evrópu
Faraldur RS veirusýkingar gengur yfir í ríkjum ESB/EES líkt og hér á landi. Eins og búast má við hefur sjúkdómurinn mest áhrif á börn yngri en 5 ára.
Heilt yfir er tíðni COVID-19 áfram á niðurleið eftir aukningu á greiningum í sumar. Einstaklingar í aldurshópnum 65 ára og eldri eru áfram í mestri hættu á að veikjast alvarlega af COVID-19.
Tíðni inflúensu er hægt á uppleið, á svipuðum tíma og í fyrravetur.
Á haustmánuðum bar á aukningu á Mycoplasma greiningum á Norðurlöndunum líkt og um svipað leyti síðasta vetur. Mycoplasma er ekki tilkynningarskyldur sjúkdómur í mörgum ríkjum EES/ESB en mikilvægi þess að fylgjast með óvenjulegum og/eða alvarlegum sjúkdómseinkennum, ásamt vísbendingum um sýklalyfjaónæmi, er áréttað.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins.
Forvarnir
Bólusetningar eru áhrifaríkasta vörnin gegn alvarlegum veikindum vegna öndunarfæraveirusýkinga. Haustbólusetningar vegna COVID-19 og inflúensu eru enn í gangi og einstaklingar eldri en 60 ára og aðrir einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu en þeir eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum. Þátttaka áhættuhópa í bólusetningum gegn inflúensu hefur verið síðri en vonast var til það sem af er vetri og er mikilvægt að bæta þar úr.
Við minnum einnig á almennar sóttvarnir, sjá upplýsingar á vef embættis landlæknis.
Sóttvarnalæknir