Öndunarfærasýkingar - Vika 45 árið 2026
12. nóvember 2026
Aukinn fjöldi greindist með COVID-19 og inflúensu í liðinni viku. Hópsýkingar komu upp á tveimur deildum Landspítala sem skýrir þessa aukningu að hluta. Bólusetningar gegn inflúensu halda áfram.

Staðan á Íslandi
Greiningum á COVID-19 fjölgaði í síðustu viku. Tæpur helmingur þeirra 32 sem greindust með COVID-19 tengdist hópsýkingu sem upp kom á einni deild á Landspítala. Þá greindust 11 einstaklingar á bráðamóttökum, sem gefur til kynna að COVID-19 hafi einnig náð meiri útbreiðslu í samfélaginu.
Greiningum á inflúensu fjölgaði einnig í síðustu viku. Af þeim 27 sem greindust með inflúensu í síðustu viku greindist tæpur helmingur á bráðamóttökum, en sjö einstaklingar tengdust hópsýkingu á Landspítala, á annarri deild en er nefnd að ofan.
Færri greindust með aðrar öndunarfæraveirur í síðustu viku samanborið við undangengnar vikur. Enn hefur engin RS-veira greinst í vetur.
Hlutfall jákvæðra sýna af greindum öndunarfærasýnum hefur hækkað undanfarnar tvær vikur sem styður að fjölgun tilfella sé raunveruleg.
Einstaklingum sem lágu á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu fjölgaði í síðustu viku, og flestir af þeim greindust með COVID-19 eða inflúensu.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 45 árið 2026 (2.-8. nóvember 2026).

Mynd 1: Fjöldi nýgreininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala sem greindust með öndunarfæraveirur eftir vikum árs 2026, sjá mælaborð.
Inflúensubólusetningar
Bólusetningar gegn inflúensu eru í fullum gangi. Þátttaka 60 ára og eldri er kominn upp í tæp 40% en markmið er að ná að minnsta kosti 70% þátttöku. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins gerði átak í nefúðabólusetningum barna á aldrinum 2-4 ára í síðustu viku. Gögn um skráðar bólusetningar sýna að 3127 börn hafi þegið nefúðabólusetningu frá því bólusetningar hófust sem eru um 24% af börnum í þessum aldurshópi.
Staðan í Evrópu
Komum á heilbrigðisstofnanir vegna öndunarfæraveirusýkinga í ríkjum ESB/EES fer hægt fjölgandi, en tíðni er enn lág. COVID-19 er áfram sú öndunarfærasýking sem greinist í mestum mæli og eru flestar greiningar á sjúkrastofnunum meðal fólks 65 ára og eldra. Greiningum á inflúensu fer fjölgandi en árlegur faraldur er ekki hafinn. Líkt og með COVID-19 eru flestar greiningar inflúensu á sjúkrastofnunum meðal eldra fólks. RS veirusýking greinist vart í ríkjum ESB/EES. Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Bólusetningar gegn inflúensu eru nú hafnar. Allir eldri en 60 ára, börn 6 mánaða til og með 4 ára og aðrir áhættuhópar eru hvattir til að huga að bólusetningu.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir