Öndunarfærasýkingar - Vika 44 árið 2026
5. nóvember 2026
Fjöldi greininga á öndunarfærasýkingum sveiflast milli vikna en hefur þó aukist frá því í sumar. Inniliggjandi á Landspítala með greinda öndunarfærasýkingu fækkaði undanfarnar tvær vikur. Bólusetningar gegn inflúensu eru hafnar.

Staðan á Íslandi
Greiningar á inflúensu sveiflast milli vikna. Í síðustu viku (viku 44) greindust heldur fleiri en í vikunni á undan. Fjöldi COVID-19 greininga sveiflast einnig. Heilt yfir hefur þó greiningum inflúensu og COVID-19 fjölgað frá því í sumar. Enn hefur engin RS-veira greinst í vetur.
Færri greindust með rhinoveiru í síðustu viku samanborið við vikurnar á undan. Hins vegar fjölgaði greiningum á parainflúensum.
Hlutfall jákvæðra öndunarfærasýna af greindum sýnum hefur verið á bilinu 30-40% undanfarnar þrjár vikur.
Einstaklingum sem lágu á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu fækkaði síðastliðnar tvær vikur, en fjöldinn hefur þó almennt aukist frá því í sumar.
Inflúensubólusetningar
Bólusetningar gegn inflúensu eru komnar á fullt skrið. Apótek víða um land taka nú þátt í bólusetningum fullorðinna, mörg í fyrsta sinn.
Nú í vetur var lögð aukin áhersla á að bóluefni gegn inflúensu sem sóttvarnalæknir tryggir næði til forgangshópa, enda bóluefni einnig fáanlegt á almennum markaði fyrir einstaklinga utan forgangshópa. Gögn um skráðar bólusetningar sýna að um fjórðungur bóluefnis sem sóttvarnalæknir útvegar hefur verið notaður og mikill meirihluti þeirra skammta sem gefnir hafa verið hafa farið til forgangshópa (mynd 1).

Mynd 1. Hlutfall bólusetninga eftir forgangshópi og þjónustuaðila það sem af er þessum vetri. Gögn ná til 4. nóvember 2026.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 44 árið 2026 (26. október.-1. nóvember 2026).

Mynd 2: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur, sjá mælaborð.
Staðan í Evrópu
Komur á heilbrigðisstofnanir vegna öndunarfæraveikinda í ríkjum ESB/EES eru enn fáar. Sú öndunarfæraveira sem greinist í mestum mæli er COVID-19/SARS-CoV-2 og greinist hún bæði á heilsugæslum og á sjúkrastofnunum. Lítið er um inflúensu, en af þeim sem greinast eru flestir með inflúensutegund A(H1N1)pdm09. RS veirusýking greinist vart í ríkjum ESB/EES. Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Bólusetningar gegn inflúensu eru nú hafnar.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir