Öndunarfærasýkingar - Vika 41 árið 2026
15. október 2026
Greiningum á öndunarfæraveirusýkingum fer áfram fjölgandi, eins og búast má við á þessum árstíma.

Staðan á Íslandi
Greiningum á inflúensu hefur fjölgað undanfarið, en eru þó enn tiltölulega fáar. Fjöldi greininga á COVID-19 hefur sveiflast nokkuð undanfarið en nú virðist sem greiningum fari fjölgandi, þó greiningar séu enn fáar. Engin ný tilfelli RS-veirusýkingar hafa greinst undanfarnar vikur. Af öðrum öndunarfæraveirum greinast nú helst rhinoveira (kvefveira) og enteroveira og fer greiningum fjölgandi. Tölurnar byggja á sýnum sem send eru til rannsóknar og sem fyrr koma flest sýnin frá sjúkrahúsum. Fjöldi einstaklinga sem liggja á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu hefur aukist jafnt og þétt frá því í sumar.
Einstaklingar sem eru í áhættuhópum ættu að fylgjast vel með hvenær bólusetning gegn árlegri inflúensu hefst.
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 41 árið 2026 (5.–11. október 2026).

Mynd 1: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur. Sjá mælaborð.
Inflúensa
Greiningum á inflúensu fer áfram fjölgandi en eru enn tiltölulega fáar. Í síðustu viku (viku 41) greindust 19 með inflúensu. Tæpur helmingur þeirra sem greindust (átta einstaklingar) voru 65 ára eða eldri. Átta voru 15-64 ára og þrír voru undir 5 ára. Meirihlutinn (16 einstaklingar) greindist með inflúensutegund A(pdm09) og þrír voru með tegund A(H3). Sjö einstaklingar lágu á Landspítala með inflúensu, heldur fleiri en undanfarnar vikur. Af þeim sem lágu inni voru sex á aldrinum 65 ára og eldri og einn var á aldrinum 15–64 ára.
Nefúðabóluefni gegn inflúensu er komið til landsins og bólusetningar barna frá tveggja ára aldri eru hafnar. Hefðbundið inflúensubóluefni fyrir yngri börn og fyrir fullorðna er seint á ferð vegna framleiðslutafa sem hafa áhrif á alla Evrópu en vonir standa til að bólusetningar hefjist á næstu vikum á heilsugæslum og annarstaðar þar sem bólusetningar forgangshópa fara fram.
RS-veirusýking
Ekkert tilfelli RS-veirusýkingar greindist í viku 41. Aðeins hefur eitt tilfelli greinst frá byrjun júlí og var það barn undir 1 árs aldri sem greindist í viku 33 (10.–16. ágúst).
COVID-19
Í viku 41 greindust 11 einstaklingar með COVID-19, heldur fleiri en í vikunum á undan. Rúmur helmingur (sex einstaklingar) var 65 ára eða eldri og fimm einstaklingar voru á aldrinum 15–64 ára. Sex einstaklingar lágu á Landspítala með COVID-19, þrír 65 ára eða eldri og þrír á aldrinum 15–64 ára.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Greiningum á öðrum öndunarfæraveirum fer áfram fjölgandi. Rhinoveira er enn ein algengasta öndunarfæraveiran sem greinist og greindust 40 einstaklingar með rhinoveiru í viku 41. Greiningum á enteroveiru hefur einnig fjölgað frá því í sumar og greindust 14 einstaklingar með enteroveriru í viku 41.
Staðan í Evrópu
Lítið er um greiningar á inflúensu í ríkjum ESB/EES, en greningar eru algengastar meðal eldra fólks (65 ára og eldra) og mest er um inflúensutegund A. Fáir greinast með RS-veirusýkingu um þessar mundir. Hlutfall jákvæðra COVID-19 greininga af fjölda sýna (e. test positivity) hefur hækkað á sjúkrastofnunum og eru þær greiningar helst meðal fólks 65 ára og eldra. Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Einstaklingar í áhættuhópum ættu að fylgjast vel með hvenær bólusetningar gegn árlegri inflúensu hefjast.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir