Öndunarfærasýkingar – Vika 41 árið 2025
16. október 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 41 árið 2025 (6.−12. október 2025).
Eins og áður koma langflest sýni til rannsóknar frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.
Inflúensa
Eftir einstaka tilfelli inflúensu í sumar hefur greiningum farið fjölgandi í haust eins og viðbúið er. Tuttugu og einn einstaklingur greindist með inflúensu í viku 39 (lok september) og tíu í viku 40 og aðrir tíu í viku 41. Flestir greindust með inflúensutegund A(H3) og engin með tegund influensu B. Síðustu þrjár vikur hafa flestir sem greinst hafa með inflúensu verið í aldursflokkunum 15 ára og eldri.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
Árviss bólusetning gegn inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvum. Hægt er að bóka tíma á mínum síðum í Heilsuveru eða með því að hringja í sína heilsugæslustöð. Sjá frétt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar og eru þeir hópar sérstaklega hvattir til að þiggja bólusetningu:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu sbr. frétt í okt. 2023
RS-veirusýkingar
RS-veirusýkingar hafa verið í lágmarki síðustu vikur og árlegur faraldur ekki hafinn. Einn einstaklingur í aldurshópnum 15–64 ára greindist í viku 28 (8.–14. júlí), og einn einstaklingur í aldurshópnum 65 ára og eldri greindist í viku 41.
COVID-19
Upp úr síðustu áramótum og fram á vor 2025 greindust fá tilfelli í viku hverri. Aukning tilfella fór að sjást um miðjan maí síðastliðinn, hélst fram eftir sumri og fór hæst í 28 tilfelli í viku 28 (fyrri hluta júlí). Tilfellum hefur nú aftur fækkað og fjöldi haldist nokkuð stöðugur. Í viku 41 (6.–12. október) greindust 12 einstaklingar með COVID-19, annað hvort með PCR-prófi eða klínískri greiningu (greining læknis án rannsóknar).
Aðrar öndunarfæraveirur
Rhinoveira (kvef) var algengust þeirra öndunarfæraveira sem greindust í sumar og á fyrstu vikum haustsins.
Greiningar kíghósta hafa verið fáar frá síðasta vetri. Tvö tilfelli greindust í sumar, eitt í júlí og eitt í ágúst, og eitt tilfelli greindist í viku 38 (15.–21. september).
Innlagnir á Landspítala
Í viku 41 lágu þrír einstaklingar á Landspítala með COVID-19, þar af tvö börn undir eins árs og einn 65 ára og eldri. Sex einstaklingar lágu inni með inflúensu, þar af fjórir 65 ára og eldri, einn 15–64 ára og eitt barn 1–2 ára. Enginn lá inni með RS-veiru.
Staðan í Evrópu
Í ríkjum ESB/EES hefur útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV-2) minnkað og tíðni sjúkrahúsinnlagna er lág.
Greiningar RS-veirusýkinga og inflúensu eru í lágmarki.
Fjöldi einstaklinga sem leita til heilsugæslu með öndunarfæraeinkenni er enn lár, en fjölgar nú í flestum löndum eins og búast má við á þessum árstíma. Mesta aukning er meðal barna undir 15 ára aldri.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Þiggja inflúensubólusetningu ef í forgangs- eða áhættuhópi.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir