Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 40 árið 2026

8. október 2026

Greiningum á öndunarfæraveirusýkingum hefur almennt farið fjölgandi hér á landi undanfarnar vikur, eins og búast má við á þessum árstíma.

Greiningum á inflúensu hefur fjölgað undanfarið, en eru þó enn tiltölulega fáar. Ekki eru merki um sambærilega aukningu í greiningum á COVID-19. Engin ný tilfelli RS-veirusýkingar hafa greinst undanfarnar vikur. Af öðrum öndunarfæraveirum greinast nú helst rhinoveira (kvefveira) og enteroveira. Tölurnar byggja á sýnum sem send eru til rannsóknar og sem fyrr koma flest sýnin frá sjúkrahúsum. Fjöldi einstaklinga sem liggja á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu hefur aukist jafnt og þétt frá því í sumar.

Einstaklingar sem eru í áhættuhópum ættu að fylgjast vel með hvenær bólusetning gegn árlegri inflúensu hefst.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 40 árið 2026 (28. september til 4. október 2026).

Mynd með frétt um öndunarfærasýkingar. Vika 40 2026

Mynd 1: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur. Sjá mælaborð.

Inflúensa

Greiningum á inflúensu fer nú fjölgandi en eru enn tiltölulega fáar. Stöku tilfelli greindust frá lokum júlí til loka ágúst en þá fór tilfellum hægt fjölgandi. Í síðustu viku (viku 40; 28. september – 4. október) greindust 16 með inflúensu. Yfir helmingur þeirra sem greindust (10 einstaklingar) var 65 ára eða eldri. Fjórir voru 15-64 ára, einn var 5-14 ára og einn var undir 5 ára. Meirihlutinn (14 einstaklingar) greindist með inflúensutegund A(pdm09) og tveir voru með tegund A(H3). Þá lágu þrír einstaklingar á Landspítala með inflúensu, allir 65 ára eða eldri.

Nefúðabóluefni gegn inflúensu er komið til landsins og bólusetningar barna frá tveggja ára aldri eru hafnar. Hefðbundið inflúensubóluefni fyrir yngri börn og fyrir fullorðna er seint á ferð vegna framleiðslutafa sem hafa áhrif á alla Evrópu en vonir standa til að bólusetningar hefjist upp úr miðjum október á heilsugæslum og annars staðar þar sem bólusetningar forgangshópa fara fram.

RS-veirusýking

Aðeins eitt tilfelli RS-veirusýkingar hefur greinst frá byrjun júlí og var það barn undir 1 árs aldri sem greindist í viku 33 (10.-16. ágúst).

COVID-19

Frá því í byrjun júlí hafa á bilinu einn til átta greinst með COVID-19 í viku hverri. Ólíkt inflúensu hafa greiningar á COVID-19 ekki aukist nú þegar líður á haustið. Í viku 40 greindust sjö einstaklingar með COVID-19. Meirihlutinn (fimm einstaklingar) var 65 ára eða eldri, einn var á aldrinum 15-64 ára og einn var undir 5 ára. Fjórir einstaklingar lágu á Landspítala með COVID-19, allir 65 ára eða eldri.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Greiningum á öðrum öndunarfæraveirum hefur farið fjölgandi frá byrjun ágúst. Rhinoveira er áfram ein algengasta öndunarfæraveiran sem greinist og hafa yfir 20 einstaklingar greinst með rhinoveirusýkingu í hverri viku frá miðjum ágúst. Greiningum á enteroveiru hefur einnig fjölgað frá því í sumar og hafa níu til 15 einstaklingar greinst með enteroveirusýkingu í hverri viku frá byrjun september.

Staðan í Evrópu

Heilt yfir er lítið um öndunarfærasýkingar í ríkjum ESB/EES þó að stöku ríki merki aukningu í heilsugæslu og á sjúkrastofnunum. Lítið er um greiningar á inflúensu en helst ber á aukningu á sjúkrastofnunum meðal eldra fólks (65 ára og eldri). Lítið er um RS-veirusýkingar eins og við má búast á þessum árstíma. Greiningum á COVID-19 hefur fjölgað lítillega bæði í heilsugæslu og á sjúkrastofnunum. Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Einstaklingar í áhættuhópum ættu að fylgjast vel með hvenær bólusetningar gegn árlegri inflúensu hefjast.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir