Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 4 2026

29. janúar 2026

Árlegur inflúensufaraldur er enn í gangi. Fjöldi greindra tilfella hefur verið mikill í vetur en hefur farið fækkandi undanfarið og virðist toppi náð.

Fáir eru innlagðir á Landspítala með eða vegna inflúensu. Í viku 4 var hins vegar aukning á greiningum RS veirusýkingu (RSV).

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 4 (19.−25. janúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur, toppi virðist náð en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð. (Sjá mynd 1 og mælaborð).

Mynd 1. Fjöldi greininga inflúensu

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 4 greindust níu tilfelli inflúensu, allt tilfelli A, þar af átta af tegund A(H3) og eitt af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Sex einstaklingar 65 ára og eldri, tveir voru 15−64 ára og eitt barn undir eins árs.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfellli af tegund B hafa greinst enn sem komið er en ekki útilokað að það gerist.

Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Í viku 4 greindust 19 tilfelli RS veirusýkingu (RSV), fjórir einstaklingar 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, eitt barn 3−4 ára, 11 börn 1−2 ára og tvö börn undir 1 árs. Að meðaltali greindust sjö tilfelli á viku síðustu fjórar vikur. Níu einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, þrír 65 ára og eldri og sex börn 1−2 ára.

Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið um það bil fram til 31. mars 2026.

Nánari upplýsingar um RSV faraldur þessa tímabils og fyrri tímabila er að finna í mælaborði sem er aðgengilegt á vef embættis landlæknis.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur en í viku 4 greindust 20 einstaklingar, átta 65 ára og eldri, níu 15−64 ára og þrír undir 5 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 6 tilfelli á viku. Tveir einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, báðir í aldursflokknum 65 ára og eldri.

Bólusetningar

Meðal þeirra sem mælt er með árlegum inflúensubólusetningum hjá eru einstaklingar eldri en 60 ára og börn yngri en 5 ára. Þátttaka þeirra eldri var um 54% nú í vetur og þátttaka hjá yngri börnum um 23% (mynd 2). Allt bóluefni sem pantað var til landsins þennan veturinn er komið í dreifingu eða búið að nota.

Mynd 2. Þátttaka í inflúensubólusetningum

Mynd 2: Þátttaka í inflúensubólusetningum eftir aldurshópum á tímabilinu 2025–2026

Innlagnir á Landspítala

Innlögðum með inflúensu hefur fækkað mikið milli vikna. Í viku 4 lágu sex einstaklingar á Landspítala með inflúensu, allir 65 ára og eldri. Sjá mynd 3.

Mynd 3. Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir

Mynd 3: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu í innlögn á Landsspítala í viku 42 2025 til viku 4 2026.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 4 greindust 20 með rhinoveiru. Undanfarnar vikur hefur greiningum human metapneumoveiru fjölgað, í viku 4 greindust 18 tilfelli.

Staðan í Evrópu

  • Í ríkjum ESB/EES er aukinn fjöldi sjúklinga sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma í flestum ríkjum. Þetta bendir til að nú sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.

  • Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk og í mörgum löndum virðist toppnum hafa vera náð. Inflúensa A(H3N2) er áfram algengasta undirtegundin en A(H1N1)pdm09 er einnig að greinast. Fjöldi sjúkrahúsinnlagna fer lækkandi en er enn mikill, sérstaklega meðal fólks 65 ára og eldri.

  • RSV greiningar eru í aukningu og útbreiðsla er aukinn. Innlagnir á sjúkrahús vegna RSV fer fjölgandi í flestum löndum, sérstaklega meðal barna undir fimm ára.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV2) sýkinga fer minnkandi í öllum aldurshópum, útbreiðsla er lítil og sjúkrahúsainnlagnir eru fáar.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Allt inflúensubóluefni er komið í dreifingu.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir