Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 3 2026

22. janúar 2026

Árlegur inflúensufaraldur er í gangi. Fjöldi greindra tilfella hefur verið mikill í vetur en hefur farið fækkandi undanfarið.

Fáir eru innlagðir á Landspítala með eða vegna inflúensu. Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur, toppi er hugsanlega náð en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð. (Sjá mynd 1 og mælaborð).

Lítið greinist af COVID-19 og á síðustu 4 vikum hafa greinst 5−7 tilfelli RS-veiru á viku.

Mynd 1. Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 3 (12.−18. janúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Í viku 3 greindust 12 tilfelli inflúensu, allt tilfelli A, þar af sex af tegund A(H3), fjögur af tegund A(pdm09) og tvö með óþekkta undirtegund. Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: Átta einstaklingar 65 ára og eldri, tveir voru 15−64 ára, einn var 5−14 ára og einn var undir eins árs.

Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur venjulega á tímabilinu október til mars. Inflúensan veldur mismiklum veikindum hjá einstaklingum en veikindin geta verið alvarleg. Þegar smit eru útbreidd er meiri hætta á að einstaklingar í áhættuhópum veikist með alvarlegri afleiðingum, álag eykst einnig á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður aukning á fjarvistum frá vinnu og skóla.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Inflúensuveiran breytir sér nær stöðugt og því er samsetningu inflúensubóluefnis endurskoðuð árlega til að það haldi virkni. Þessar breytingar veirunnar geta leitt til misalvarlegra árlegra inflúensufaraldra og virkni bóluefnisins er einnig mismunandi ár frá ári. En jafnvel á árum þegar virkni bóluefnis er minni dregur það úr hættu á alvarlegum veikindum, sjúkrahúsinnlögnum og dauða, sérstaklega hjá áhættuhópum.

Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

Bólusetningar

Meðal þeirra sem mælt er með árlegum inflúensubólusetningum hjá eru einstaklingar eldri en 60 ára og börn yngri en 5 ára en þátttaka þeirra eldri er um 54% nú í vetur og þátttaka hjá yngri börnum um 23% (mynd 2). Allt bóluefni sem pantað var til landsins þennan veturinn er komið í dreifingu eða búið að nota.

Mynd 2. Þátttaka í inflúensubólusetningum eftir aldurshópum á tímabilinu 2025–2026

Mynd 2: Þátttaka í inflúensubólusetningum eftir aldurshópum á tímabilinu 2025–2026

Innlagnir á Landspítala

Innlögðum með inflúensu hefur fækkað mikið. Í viku 3 lágu tveir einstaklingar á Landspítala með inflúensu, báðir 65 ára og eldri. Sjá mynd 3.

Mynd 3. Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 3 árið 2026

Mynd 3: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu í innlögn á Landsspítala í viku 42 2025 til viku 3 2026.

Miðað við upphaf faraldra undanfarin ár og ef tekið er mið af fjölda greininga sést að fjöldi innlagna á Landspítala með eða vegna inflúensu á fyrstu 17 vikum faraldurs var mun hærri í ár en undanfarin ár á sama árstíma (mynd 4).

Mynd 4: Uppsafnaður fjöldi innlagna með/vegna inflúensu á Landspítala á fyrstu 17 vikum faraldurs (tímabilið 2025−2026)

Mynd 4: Uppsafnaður fjöldi innlagna með/vegna inflúensu á Landspítala á fyrstu 17 vikum faraldurs (tímabilið 2025–2026 rautt).

Aðrar öndunarfærasýkingar

RS-veirusýkingar

Í viku 3 greindust níu tilfelli RS veirusýkingu (RSV), fjórir einstaklingar 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, þrjú börn 1−2 ára og eitt barn undir eins árs. Fjórir einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, tveir 65 ára og eldri, eitt barn 1−2 ára og eitt barn undir eins árs. Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab yfir RSV tímabilið um það bil fram til 31. mars 2026.

Nánari upplýsingar um RSV faraldur þessa tímabils og fyrri tímabila er að finna í mælaborði sem er aðgengilegt á vef embættis landlæknis.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 3 greindust sjö einstaklingar, þrír 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára og tveir undir 5 ára. Tveir einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, báðir í aldursflokknum 65 ára og eldri.

Aðrar veirur

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 3 greindust 15 með rhinoveiru. Undanfarnar vikur hefur greiningum human metapneumoveiru fjölgað, í viku 3 greindust 15 tilfelli.

Staðan í Evrópu

  • Í ríkjum ESB/EES er fjöldi sjúklinga sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma hærri en venjulega í flestum ríkjum. Þetta bendir til að nú sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.

  • Útbreiðsla inflúensu heldur áfram að aukast í öllum aldurshópum, en í sumum löndum virðist toppnum hafa vera náð. Inflúensa A(H3N2) er áfram algengasta undirtegundin en A(H1N1)pdm09 er einnig að greinast. Fjöldi sjúkrahúsinnlagna er enn mikill, sérstaklega meðal fólks 65 ára og eldri.

  • RSV greinist víða og fer hægt vaxandi. Innlagnir á sjúkrahús vegna RSV eru færri en venjulega á þessum árstíma miðað við síðustu fjögur ár. Hins vegar er farið að bera á aukningu innlagna í nokkrum löndum, sérstaklega meðal barna undir fimm ára.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV2) sýkinga fer minnkandi í öllum aldurshópum og sjúkrahúsainnlagnir eru fáar.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Allt inflúensubóluefni er komið í dreifingu.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir