Öndunarfærasýkingar – Vika 10 2025
13. mars 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 10 ársins 2025 (3. - 9. mars 2025).
Staðan á Íslandi
Fjöldi greininga á bæði inflúensu og RS-veirusýkinga stefnir niður á við. Áfram greinast fáir með COVID-19. Fjöldi greininga á öðrum öndunarfæraveirum var svipaður í viku 10 og undangengnar tvær vikur. Enginn greindist með kíghósta í viku 10 en stöku tilfelli hafa verið að greinast frá áramótum.
Inflúensa, RS-veirusýking og COVID-19
Fjöldi greininga á inflúensu stefnir rólega niður á við. Samtals greindust 26 einstaklingar í viku 10, þar af 17 með inflúensutegund A(pdm09), fimm með tegund A(H3) og fjórir með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en tveir einstaklingar voru undir fimm ára aldri, þrír voru í aldurshópnum 5–14 ára, níu voru 15–64 ára og 12 voru 65 ára eða eldri.
Tíu einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu í viku 10, þar af níu í aldurshópnum 65 ára og eldri og eitt barn á aldrinum 3–4 ára. Þá dvöldu níu einstaklingar á bráðamóttökum í lengri eða skemmri tíma með inflúensu, en þessum fjölda hefur farið fækkandi undanfarnar vikur.
Fjöldi greindra RS-veirusýkinga fer áfram lækkandi. Í viku 10 greindust fjórir einstaklingar, þar af þrír í aldurshópnum 65 ára og eldri og eitt barn 1–2 ára. Enginn lá á Landspítala með RS-veirusýkingu.
Einn einstaklingur á aldrinum 65 ára og eldri greindist með COVID-19. Enginn lá á Landspítala með COVID-19.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum, öðrum en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, var svipaður í viku 10 og undangengnar tvær vikur. Áfram greinist stærstur hluti með rhinoveiru (kvef), en í viku 10 voru kórónuveirur aðrar en SARS-CoV-2 næst algengasta greiningin. Svipaður fjöldi öndunarfærasýna var rannsakaður í viku 10 samanborið við undanfaranar vikur eða 193 sýni. Hlutfall jákvæðra sýna hefur sveiflast frá lokum ársins 2024 og var það rúmlega 41% í viku 10.
Fjöldi greininga á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) fer heilt yfir lækkandi en í viku 10 greindust tveir einstaklingar. Enginn greindist með kíghósta í viku 10.
Staðan í Evrópu
Áfram er talsvert um öndunarfærasýkingar í ríkjum ESB/EES.
Inflúensufaraldur virðist hafa náð hámarki í meirihluta ríkja en tilfellum fer þó fjölgandi í einstaka ríkjum. Tíðni innlagna á sjúkrahús, sem hefur verið há undanfarið, virðist nú fara lækkandi. Tíðni innlagna er hæst meðal einstaklinga 65 ára og eldri.
Staðan á RS-veirusýkingum er misjöfn eftir ríkjum en almennt fer tíðnin lækkandi. Innlagnir á sjúkrahús vegna RS-veirusýkinga eru tíðastar meðal barna undir fimm ára aldri.
Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er mjög lág í flestum ríkjum ESB/EES.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins.
Almennar sóttvarnir, við minnum á að:
Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.
Grímunotkun í heilbrigðisþjónustu á meðan inflúensufaraldur er í hámarki getur dregið úr útbreiðslu til viðkvæmra einstaklinga.
Sóttvarnalæknir