Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Ný sóttvarnalög taka gildi

1. september 2026

Í dag, 1. september 2026, taka gildi ný sóttvarnalög nr. 40/2026 og leysa af hólmi sóttvarnalög frá árinu 1997. Lögin voru samþykkt á Alþingi 21. apríl síðastliðinn eftir umfangsmikla endurskoðun löggjafar um sóttvarnir.

Markmiðið er áfram hið sama: Að vernda líf og heilsu fólks og samfélagið gegn smitsjúkdómum með eins markvissum og réttlátum hætti og unnt er.

Nýju lögin byggja meðal annars á reynslu undanfarinna ára, ekki síst af COVID-19 faraldrinum. Þau fela ekki í sér grundvallarbreytingu á daglegu sóttvarnastarfi heldur setja skýrari og heildstæðari ramma um ábyrgð, samhæfingu og ákvarðanatöku þegar alvarlegar farsóttir eða aðrar heilbrigðisógnir koma upp.

Ein helsta breytingin er skýrari staða sóttvarnalæknis. Samkvæmt eldri lögum bar embætti landlæknis ábyrgð á framkvæmd sóttvarna. Nú skipar ráðherra sóttvarnalækni til fimm ára í senn. Sóttvarnalæknir starfar áfram innan embættis landlæknis en ber sjálfur ábyrgð á framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn ráðherra.

Lögin gera jafnframt skýrari greinarmun á alvarlegum sjúkdómum og svokölluðum samfélagslega hættulegum sjúkdómum og setja skýrari reglur um þær sóttvarnaráðstafanir sem heimilt er að grípa til. Þá tekur til starfa ný farsóttanefnd, með fulltrúum heilbrigðiskerfis og almannavarna, sem gegnir lykilhlutverki þegar smitsjúkdómur getur haft víðtæk áhrif á samfélagið.

Lögin skýra jafnframt skyldur einstaklinga, fyrirtækja og stofnana til að stuðla að því að draga úr smithættu. Rík áhersla er lögð á að opinberar sóttvarnaráðstafanir séu nauðsynlegar og í samræmi við meðalhóf og jafnræði, með hliðsjón af réttindum einstaklinga og félagslegum og efnahagslegum áhrifum. Þá eru gerðar skýrari kröfur um upplýsingagjöf til almennings og rökstuðning stjórnvalda þegar gripið er til víðtækra ráðstafana.

Í stuttu máli fela nýju sóttvarnalögin ekki í sér gjörbreytingu, heldur skýrari og nútímalegri umgjörð um sóttvarnir. Þau skýra ábyrgð og samstarf stjórnvalda og stofnana og leggja áherslu á að viðbrögð séu vel undirbúin, samhæfð, gagnsæ og byggð á meðalhófi.

Sóttvarnalæknir

Nánar: