Mælaborð um starfsemi sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana
21. nóvember 2023
Gagnvirkt mælaborð um starfsemi sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana er nú aðgengilegt á vef embættis landlæknis og er öllum sem hag hafa að frjálst að nýta gögn þess.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2e5OwRJmhkhABmgrrzWllm/df051df8163eb08461799fbca441b8f8/sjukrahus_maelabord.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Starfsemi sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana - mælaborð](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2e5OwRJmhkhABmgrrzWllm/df051df8163eb08461799fbca441b8f8/sjukrahus_maelabord.png?w=774&fm=webp&q=80)
Birtingin er liður í því að veita yfirsýn yfir notkun heilbrigðisþjónustu á landsvísu. Undirstaða mælaborðsins eru gögn vistunarskrár heilbrigðisstofnana sem er ein af lögbundnum heilbrigðisskrám landlæknis. Gögn skrárinnar eiga uppruna sinn hjá heilbrigðisstofnunum víðsvegar um landið og byggja á skráningu heilbrigðisstarfsfólks sem þar starfar. Í mælaborðinu er hægt að nálgast tölfræði um legur, legudaga og meðallegutíma á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum frá árinu 2000. Mælaborðið verður uppfært árlega.
Frekari upplýsingar:
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is