Farsóttafréttir eru komnar út - nóvember 2026
5. nóvember 2026
Í Farsóttafréttum að þessu sinni er fjallað um forvarnir gegn öndunarfærasýkingum og flensutímabilið sem er gengið í garð.

Þá er greint frá stöðu lekanda, klamydíu og HIV á síðari hluta þessa árs. Einnig er fjallað um samvinnu Norðurlanda í undirbúningi fyrir næsta faraldur (NordPrep). Loks er fjallað um árlega vitunarvakningu um sýklalyfjaónæmi og málþing sem fram fer af því tilefni þann 18. nóvember næstkomandi.
Sóttvarnalæknir