Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Auglýsing um starf aðstoðarmanns landlæknis

13. október 2026

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða aðstoðarmann landlæknis. Um er að ræða áhugavert, krefjandi og mjög fjölbreytt starf sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði, fagmennsku og sveigjanleika í vinnutíma. Næsti yfirmaður er landlæknir en viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við aðra starfsmenn embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoðarmaður landlæknis sinnir hvers kyns viðfangsefnum sem styðja landlækni og embætti landlæknis við að rækja hlutverk sitt.

  • Móttaka og úrvinnsla fyrirspurna frá almenningi, fjölmiðlum, opinberum aðilum og fyrirtækjum.

  • Samskipti við fjölmiðla, viðtalsbókanir og skrif fréttatilkynninga.

  • Almenn skrifstofustörf, skjalagerð og skjalavistun.

  • Undirbúningur og eftirfylgni við fundi framkvæmdastjórnar.

  • Þátttaka í undirbúningi, skipulagningu og setu funda og viðburða.

  • Samskipti við erlenda samstarfsaðila.

  • Ýmis önnur verkefni að beiðni landlæknis.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Góð reynsla af samskiptum við fjölmiðla er kostur.

  • Afbragðs þekking og færni í íslensku er skilyrði.

  • Góð færni í ensku er skilyrði, norðurlandamál er kostur.

  • Reynsla af notkun samfélagsmiðla í miðlun upplýsinga.

  • Góð almenn tölvukunnátta, hæfni í notkun helstu skrifstofuforrita.

  • Þekking á heilbrigðiskerfinu er kostur.

  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.

  • Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð, nákvæmni, skipulagshæfni og þjónustulund.

  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum, samstarfsvilji og sveigjanleiki í daglegum störfum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins og við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi sem er að hámarki þrjár blaðsíður að lengd. Í kynningarbréfinu skal koma fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig menntun, reynsla og hæfni umsækjanda samræmast kröfum starfsins, eins og þær eru tilgreindar í auglýsingunni.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2026.
Sótt er um starfið á Starfatorgi

Nánari upplýsingar veita

María Heimisdóttir, landlæknir
mottaka@landlaeknir.is - 510-1900

Þórgunnur Hjaltadóttir, mannauðsstjóri
thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is - 510-1900