Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lýðheilsuvísar Reykjavíkurborgar kynntir og samningur um Heilsueflandi samfélag endurnýjaður

7. júní 2019

Lýðheilsuvísar Reykjavíkurborgar voru kynntir í fyrsta sinn í dag. Þeir byggja á lýðheilsuvísum Embættis landlæknis en til viðbótar hefur borgin skilgreint fleiri vísa sem snúa m.a. að skipulagi, samgöngum og loftslagsmálum.

Lýðheilsuvísar Reykjavíkurborgar voru kynntir í fyrsta sinn í dag. Þeir byggja á lýðheilsuvísum Embættis landlæknis en til viðbótar hefur borgin skilgreint fleiri vísa sem snúa m.a. að skipulagi, samgöngum og loftslagsmálum. Við sama tækifæri var fyrra samkomulag um Heilsueflandi samfélag í Reykjavík, frá árinu 2013 endurnýjað þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis. Heilsugæslan kemur ný inn í samstarfið.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Nánar um Heilsueflandi samfélag

Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags