Ráðgjafi óskast á Austurlandi
20. júlí 2026

Land og skógur auglýsir eftir ráðgjafa á Austurlandi með aðsetur á Egilsstöðum. Í starfinu felast fjölbreytt og spennandi verkefni á sviði endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar landnýtingar. Viðkomandi mun vinna að ráðgjöf, áætlanagerð og eftirliti með verkefnum sem miða að endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu, öflun og skráningu upplýsinga, vöktun og mati á ástandi gróðurs og jarðvegs, fræðslu og fleira.
Land og skógur er þekkingar- og þjónustustofnun sem vinnur að uppbyggingu og vernd gróður- og jarðvegsauðlinda á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki við að bæta ástand þeirra og stuðla að sjálfbærri landnýtingu.
Stofnunin sinnir verkefnum á sviði landgræðslu, endurheimtar vistkerfa, nýskógræktar, umhirðu og friðunar skóga með það að markmiði að efla umhverfislegan, samfélagslegan og hagrænan ávinning sjálfbærrar landnýtingar.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2026
Finna má meiri upplýsingar og sækja um starfið á Starfatorgi.
