Fyrirlestrar og umræður um eitt ákveðið þema mynda jafnan dagskrá fyrri dags ráðstefnunnar, sem að þessu sinni er „lífið í skóginum“ og snýr að þeim ótal þáttum sem snerta lífríki skóga í samhengi við bæði náttúru og mannlíf.
Seinni daginn er rými fyrir hvers kyns málefni sem tengjast skógum og skógrækt, rannsóknum, menntun, nýsköpun og tækni, með öðrum orðum öllu sem lýtur að skógartengdum málefnum. Opið er fyrir tillögur að erindum og veggspjöldum – sjá hér.
Dagskrá Fagráðstefnu skógræktar 2026 (drög)
9.15 Skráning
9.45 Ávarp – sveitarstjóri Rangárþings ytra
10.00 Establishing new forests: practical and social lessons from Scotland – Olivia Murray (Tree Story)
10.30-10.50 Kaffihlé
10.50 Gæðaviðmið um val á landi til skógræktar – Vinnuhópur LOGS 11.10 ÍST 95 - Staðall um sjálfbæra skógrækt – Úlfur Óskarsson og Gunnlaugur Guðjónsson (LOGS) 11.30 Tegundaval í landgræðslu og skógrækt – Skúli Skúlason (HH)
13.30 Skógvist II: Áhrif skóga á jarðvegsþætti – Kristín Sveiney Baldursdóttir (LOGS) 13.50 Skógvist II: Líffjölbreytni jarðvegs í ræktuðum skógum á Vesturlandi (á ensku) – Safwan Daud (HÍ) 14.10 Skógvist II: Gróður í skógum og mólendi í Skorradal – Járngerður Grétarsdóttir (NÍ)
14.30-14.50 Kaffihlé
14.50 Pólitík skógræktar –Auður Kjartansdóttir
15.10 Pallborðsumræður undir stjórn Eddu S. Oddsdóttur
16.00 Rúta leggur af stað í skoðunarferð í Gunnarsholt
20.00 Ráðstefnukvöldverður – Stracta hótel
Fundarstjóri: Ragnhildur Freysteinsdóttir
9.15 Markaðsaðstæður og fjármögnun náttúrutengdra verkefna – Gunnlaugur Guðjónsson 9.30 Þverá málsókn - hvað getum við lært af henni? – Hilmar Gunnlaugsson og Valdimar Reynisson 9.45 Uppland Garðabæjar - Greining á hættusvæðum í gróðureldum – Ásdís Björk Friðgeirsdóttir 10.00 Viðarmiðlun - íslenskur burðarviður – Eiríkur Þorsteinsson
10.15-10.45 Kaffi
10.45 Græni stígurinn – Brynjólfur Jónsson 11.00 Aflvaki í þjóðfélaginu - Mannlíf og gróður – Kristinn H. Þorsteinsson 11.15 Veggspjaldakynning undir stjórn Bryndísar Marteinsdóttur
12.00-13.00 Hádegismatur
Fundarstjóri: Björn B. Jónsson
13.00 Can't see the Forest for the Boundary: Peri-Urban Woodland Resource of Icelandic Towns – Aaron Shearer 13.15 Rafmögnuð endurheimt – Ásrún Elmarsdóttir og Edda S. Oddsdóttir 13.30 Áburðaráhrif belgjurta í skógrækt – Jón Guðmundsson 13.45 Hvítsmári sem fóstra fyrir nýgróðursettar trjáplöntur – Eiður Eyþórsson
14.00 Samantekt og ráðstefnulok
Skráning
Ráðstefnugjaldið er kr. 28.000 og er hátíðarkvöldverður fyrri dag ráðstefnunnar innifalinn í verðinu. Ef honum er sleppt er gjaldið 20.000 krónur. Skráning fer fram á sérstöku eyðublaði. Krafa verður send í heimabanka.
Nemar greiða kr. 18.000 en kr. 10.000 ef hátíðarkvöldverði er sleppt. Skráning fyrir nema fer fram á sama eyðublaðinu.