Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Verðlaun fyrir myndbandagerð um skóga og skógrækt

22. mars 2025

Hvatningarverðlaun skógræktar 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Kvikunni, menningarhúsi Grindvíkinga, á alþjóðlegum degi skóga 21. mars. Að þessu sinni komu verðlaunin í hlut Pálmars Arnar Guðmundssonar, formanns Skógræktarfélags Grindavíkur, fyrir ötult kynningarstarf um skógrækt með myndbandagerð.

Verðlaunahafinn Pálmar Örn Guðmundsson

Hvatningarverðlaun skógræktar eru veitt árlega einstaklingi, hópi, fyrirtæki, félagi eða stofnun sem þykir hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Markmið með afhendingu þeirra er að hvetja skógræktarfólk til áframhaldandi starfa og vekja athygli á því margþætta góða skógarstarfi sem unnið er að um land allt.

Verðlaunin voru nú veitt öðru sinni. Auglýst var eftir tilnefningum að verðlaununum í janúar og bárust alls tuttugu tilnefningar (30 tillögur um 20 aðila). Dómnefnd valdi úr þeim þrjár tilnefningar sem kosið var um í almennri vefkosningu. Niðurstaða kosningarinnar var sú að Pálmar Örn Guðmundsson, formaður Skógræktarfélags Grindavíkur, fékk flest atkvæði og hlýtur því verðlaunin í ár.

Athöfnin í Kvikunni hófst á ávarpi Ásrúnar Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, sem bauð gesti velkomna og sagði stuttlega frá stöðu mála í bænum. Því næst tók Hjörtur Bergmann Jónsson, formaður búgreinadeildar skógarbænda hjá Bændasamtökunum, við og afhenti Pálmari verðlaunin formlega. Fékk Pálmar sem verðlaunagrip til eignar tvær fallegar skálar úr íslensku birki, sem gerðar eru af handverksmanninum Trausta Tryggvasyni, sem einnig er fyrrverandi formaður Skógræktarfélags Stykkishólms.

Pálmar hefur á eigin spýtur unnið mikilvægt og óeigingjarnt kynningarstarf í þágu skógræktar á Íslandi með Youtube-rás sinni Skógurinn, þar sem hann hefur fjallað um ýmsa þætti skógræktar – einstaka trjátegundir, skóga og skógræktaraðila, svo sem gróðrarstöðvar. Þrátt fyrir að heimabærinn hans og skógar Skógræktarfélags Grindavíkur hafi skemmst vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga undanfarin ár hefur Pálmar ekki látið deigan síga. Myndböndin vinnur hann að öllu leyti sjálfur. Með sinni einlægu og smitandi ástríðu fyrir skógum og náttúru, kveikir Pálmar áhuga hjá hverjum þeim sem uppgötvar myndböndin hans og er sérlega lofsvert hvað hann hefur verið duglegur að setja enska texta við myndböndin, svo fleiri geti notið þeirra.

Að Hvatningarverðlaunum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (búgreinadeild skógarbænda). Myndina af Pálmari Erni tók Elisabeth Bernard.