Uppgræðslustarf við Vaðöldu og nágrenni
15. október 2026
Vel fer saman að virkja vindaflið og græða upp land, klæða það kjarri og skógi. Land og skógur á í góðu og rótgrónu samstarfi við Landsvirkjun um uppgræðslustarf á Vaðöldu þar sem framkvæmdir standa nú yfir við fyrsta vindorkugarð á Íslandi. Svæðið var áður örfoka en gróðurinn sem þar er að eflast ver vindmyllurnar fyrir sandfoki. Framtíðarmarkmiðið er að á svæðinu breiðist út birkiskógur og víðikjarr sem er öflugasta vörnin gegn veðraöflunum en ekki síst gegn landrofi þegar öskufall verður við gos úr Heklu og öðrum nálægum eldstöðvum.

Birki að koma upp innan um vindmyllurnar á Vaðöldu. Ljósmynd: Hreinn Óskarsson
Vaðölduver rís nú norðarlega á stóru svæði sem girt var af eftir Skjólkvíagosið árið 1970. Hið friðaða svæði er norðan girðingar sem nær frá Haldi við Tungnaá niður í Þjórsá vestan Sölvahrauns. Beitarfriðaðir eru alls rúmlega 200 ferkílómetrar en svæðið tilheyrði áður afrétti Landmanna. Mikið starf hefur verið unnið þar á undanförnum áratugum við uppgræðslu en þegar starfið hófst var landið orðið mjög rofið og að stærstum hluta örfoka hraun, sandar og vikrar.
Fyrstu árin eftir að girt var sáði Landgræðslan melgresi í svæðið og var áburði dreift víða með áburðarflugvél. Uppgræðslustarfið hefur haldið áfram óslitið síðan þrátt fyrir nokkur áföll, svo sem Heklugosin 1980 og 1981, 1990 og 2000, en nokkuð af ösku barst yfir svæðið í þeim gosum.
Nokkrar gróðurtorfur voru enn á svæðinu þegar friðað var, svo sem við Hrauneyjar, Ferjufit við Hald og Vaðfit sunnan Sultartanga. Jafnframt óx birki enn í fjórum eyjum Þjórsár og Tungnaár. Samstarf hefur verið gott við Landsvirkjun sem hefur byggt upp virkjarnir á friðunartímanum, fyrst Sigölduvirkjun sem gangsett var 1978, Hrauneyjafossvirkjun 1981 og Sultartangavirkjun sem gangsett var 1999. Í Hekluskógaverkefninu hefur verið unnið að uppgræðslu og gróðursetningu birkis í trjálundi frá árinu 2007.
Vaðalda, þar sem Vaðölduver er að byggjast upp, er hefur verið unnið mikið uppgræðslustarf síðustu áratugi. Hluti svæðisins er orðinn vel gróinn og dregið hefur mjög úr sandfoki. Fyrst var áburði dreift þar með áburðarflugvélum til að efla gróður á svæðinu, en eftir 2010 var bætt verulega í uppgræðslu svæðisins. Víða um svæðið hefur verið gróðursett í birkilundi á vegum Hekluskógaverkefnisins, dreift tilbúnum áburði og kjötmjöli í góðu samstarfi við Landgræðsluna og nú Land og skóg. Samstarfsverkefni við nokkra vélhjólaklúbba hófst upp úr 2011 og hafa þeir unnið gott og mikilvægt sjálfboðaliðastarf í uppgræðslureitum þar sem meðlimir hafa grætt upp land og gróðursett birki. Meðan á vinnu við Vaðölduver stendur eru þau verkefni í bið, en stefnt er að því að halda þeim áfram þegar framkvæmdum er lokið.
Áframhaldandi samstarf Lands og skógar og Landsvirkjunar um uppgræðslu svæðisins í kringum vindmyllurnar er fyrirhugað, enda er mikilvægt til framtíðar að hamla sandfoki og klæða landið birkiskógi og víðikjarri. Slíkur gróður er mun þolnari gagnvart þeim áföllum sem búast má við á næstu áratugum, ekki síst öskufalli úr Heklu eða öðrum eldfjöllum. Sömuleiðis dregur skóg- og kjarrlendi úr foki á þau mannvirki sem reist hafa verið á svæðinu. Það fer því vel saman að græða landið og virkja vindaflið.
Hér að neðan eru tvær myndir sem Hreinn Óskarsson tók, sú fyrri frá 2008 og sú seinni frá 2012. Þær sýna hvernig svæðið þar sem Vaðölduver rís nú var áður en uppgræðsluaðgerðir hófust og gróðurhuluna sem tók fljótlega að myndast.


