Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Tilboð í rekstur tjaldsvæðis í Sandártungu í Þjórsárdal

29. apríl 2025

Land og skógur auglýsir eftir tilboðum í rekstur gamalgróins tjaldsvæðis í Sandártungu í Þjórsárdal. Frestur til að skila tilboðum er til 8. maí.

Þetta er áhugavert tækifæri fyrir einstaklinga eða fyrirtæki með áhuga á útivist og uppbyggingu aðstöðu. Mikilvægt er að rekstraraðili hafi þekkingu eða reynslu í ferðaþjónustu og ríka þjónustulund. Tjaldsvæðið skiptist í mörg rjóður, er umlukið trjágróðri og rómað fyrir náttúrufegurð. Svæðið hefur verið opið frá seinnihluta maí og fram yfir miðjan september ár hvert.

Helstu verkefni:

  • Dagleg umsjón og þrif á tjaldsvæðinu.

  • Innheimta gjalda.

  • Samskipti við gesti.

  • Viðhald á búnaði og mannvirkjum.

  • Sjá um sorphirðu og flokkun sorps til endurvinnslu.

  • Tryggja öryggi gesta og hreinlæti á svæðinu.

  • Markaðssetning og auglýsing tjaldsvæðisins.

  • Annað það sem fylgir eðlilegum rekstri tjaldsvæða.

Óskað er eftir því að tilboði fylgi stutt greinargerð um hugmyndir rekstraraðila um rekstur tjaldsvæðisins.

Drög að samningi má fá hjá Trausta Jóhannssyni, sjá hér að neðan. Tilboðsgjafar skulu gera tilboð í rekstur tjaldsvæðisins, samkvæmt fyrirliggjandi samningsdrögum.

Land og skógur áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til kl. 16 fimmtudaginn 8. maí 2025. Tilboðum skal skilað á netfangið trausti@logs.is.

Nánari upplýsingar veita: