Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Styrkir til varna gegn landbroti

11. janúar 2024

Land og skógur auglýsir eftir umsóknum um styrki til varna gegn landbroti. Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2024. Nú hefur verið lokað fyrir umsóknir (uppfært 1. febrúar).

Auglýsing um varnir gegn landbroti

Land og skógur hefur það hlutverk samkvæmt lögum um varnir gegn landbroti nr. 91/2002 að draga úr eða koma í veg fyrir landbrot og annað tjón á landi, landkostum eða mannvirkjum með vörnum gegn landbroti af völdum fallvatna.

Aðgerðir til að hefta landbrot af völdum vatnsfalla geta verið fólgnar í:

  • bakkavörnum.

  • gerð varnargarða.

  • öðrum aðgerðum sem fela í sér lagfæringu á rennsli áa eða árfarvegum.

Með bakkavörnum er átt við að grjót- eða malarfylling er sett við árbakkann til þess að stöðva landbrot. Bakkavarnir hafa oft á tíðum minni áhrif á rennsli áa og eru minna áberandi í umhverfinu en varnargarðar. Varnargarðar geta á hinn bóginn verið nauðsynlegir þar sem ár bera undir sig framburð og flæmast út fyrir farvegi sína.

Við forgangsröðun umsókna er meðal annars höfð hliðsjón af verðmæti þess lands eða mannvirkja sem landbrotið ógnar. Hámarksfjárhæð styrks er fjórar milljónir króna.

Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2024.