Vorviður auglýsir eftir umsóknum um trjáplöntur
31. mars 2026
Land og skógur auglýsir eftir umsóknum frá félögum og samtökum um stuðning til skógræktar undir merkjum Vorviðar. Stuðningurinn er ætlaður til skógræktar á vegum almennra félaga og samtaka en ekki fyrirtækja eða stofnana. Einungis er veittur stuðningur í formi trjáplantna. Umsóknarfrestur er til 12 apríl.

Sem hluti af aðgerðaráætlun ríkisins í loftslagsmálum var verkefnið Vorviður sett á laggirnar árið 2020 og var tilgangur þess að efla tengsl við og styðja félagasamtök. Land og skógur hefur ákveðið að halda verkefninu áfram þótt fyrirkomulag þess hafi aðeins breyst síðustu árin.
Markmið og forsendur:
Markmið verkefnisins er sem fyrr að efla samstarf Lands og skógar og ýmissa félaga um allt land, með því markmiði að gefa félögum kost á að binda kolefni með eigin skógrækt. Félög sem nota land sem þegar er á skipulögðu skógræktarsvæði njóta forgangs. Í ár verður styrkur veittur í formi skógarplantna/bakkaplantna af fjórum helstu tegundunum skógarplantna:
Ilmbjörk.
Stafafura.
Sitkagreni.
Alaskaösp.
Sá fyrirvari er þó til staðar að afföll geta alltaf komið upp hjá framleiðendum.
Stuðningurinn felst í úthlutun plantna eingöngu. Félög sækja um styrkinn til Lands og skógar sem annast umsýslu þessa verkefnis. Sækja þarf um fyrir hvert ár eins og vinnureglur kveða á um. Umsóknarfrestur fyrir verkefni árið 2026 er til 12. apríl 2026. Nánari útfærslur, leiðbeiningar og einstakar forsendur úthlutana eru aðgengilegar á vef Lands og skógar.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur fyrir verkefni árið 2026 er til 12. apríl.
Umsóknarferli
Félög sækja um stuðning til Lands og skógar sem annast umsýslu verkefnisins. Sækja þarf um fyrir hvert ár.
Í umsókn þarf að koma fram:
Nafn og kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang félags og forsvarsmanns eða tengiliðar.
Ræktunarsvæði, staðsetning og landgerð (lýsing ásamt mynd eða korti).
Skipulagsleg staða landsins og verndarákvæði ef einhver eru.
Áætlað umfang, landstærð, fjöldi plantna og plöntutegundir sem óskað er eftir.
Upplýsingar um eignarhald á eða umráðarétt yfir landi.
Skilyrði
Umsækjendur
Eftirfarandi félög geta sótt um:
Formleg félög sem ekki hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis góðgerðarfélög og áhugamannasamtök.
Óformleg félög sem ekki hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis vinnustaðafélög.
Félög sem hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis skógræktarfélög.
Fyrirtæki og opinberar stofnanir eða félög (hf., ehf., sf., ohf.) koma ekki til greina.
Land
Hægt er að sækja um styrk fyrir eftirfarandi landsvæði:
Stærri lönd sem eru skipulögð til skógræktar og friðuð fyrir beit eða svæði innan slíkra heilda, til dæmis svæði innan skógræktarsvæða sveitarfélaga eða annarra aðila.
Stærri einkalönd sem eru friðuð fyrir beit.
Minni svæði (minnst 1 hektari) sem eru friðuð fyrir beit.
Frístundalóðir og svæði sem ekki eru friðuð fyrir beit koma ekki til greina.
Úthlutun
Niðurstöður verða tilkynntar umsækjendum fyrir lok aprílmánaðar.
Félög sem nota land sem þegar er á skipulögðu skógræktarlandi munu njóta forgangs. Forgangsröðun mótast einkum af ræktunaröryggi, aðallega hvað varðar beitarfriðun og örugga getu félaga til að koma hlutum í verk.
Félag sem hlýtur stuðning gerir samning við Land og skóg fyrir eitt ár í senn. Samningurinn er byggður á upplýsingum umsækjanda og einfaldri ræktunaráætlun.
Uppgjör
Fyrir 1. október skulu styrkþegar skila inn framkvæmdaskýrslu á þar til gerðu eyðublaði ásamt útlínum hins nýja skógar, hnituðu inn með sérstöku appi eða teiknað inn á loftmynd.
Bökkum undan skógarplöntum ber að skila inn á afhendingarstað sem fyrst eftir gróðursetningu.
