Stjórnendahópur Lands og skógar breikkar
6. mars 2026
Fjórtán teymisstjórar hafa verið skipaðir á sviðum Lands og skógar. Hlutverk teymisstjóra verður að stýra sérstökum málefnum innan sviðanna og auka faglega forystu hjá stofnuninni. Með þessu fæst aukin valddreifing, betri tenging starfsfólks við stjórnendur og tækifæri til að hafa áhrif á framvindu mála og verkefna.

Stjórnendahópur Lands og skógar frá og með 1. mars 2026, forstöðumaður, sviðstjórar og teymisstjórar. Á myndina vantar einn af teymisstjórunum. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Tilkynnt var um fyrirkomulag teymanna á starfsmannafundi Lands og skógar sem haldinn var á Hilton Hotel Nordica í Reykjavík 27. febrúar. Langflestir starfsmenn stofnunarinnar sóttu fundinn.
Í hópavinnu á fundinum var starfsfólk beðið að kryfja til mergjar gildi Lands og skógar sem endurnýjuð voru um síðustu áramót samhliða breytingum á skipuriti og stefnu stofnunarinnar.
Með hópavinnunni hófst formlega verkefni sem unnið verður fram á haust með fyrirtækinu Hugsýn við að innleiða hið nýja fyrirkomulag, efla stjórnendur stofnunarinnar í hlutverkum sínum og starfsfólkið allt á leiðinni að settum markmiðum.
Skipan teymisstjóra er til tveggja ára í senn og fyrirkomulag teyma verður í sífelldri endurskoðun eftir því hvernig málin þróast.
Stjórnendahópurinn
Hér fyrir neðan má sjá breikkaðan stjórnendahóp Lands og skógar frá og með 1. mars 2026, forstöðumann, sviðstjóra og teymisstjóra.
Svið þjónustu, ráðgjafar og umbreytingar
Jónína Sigríður Þorláksdóttir sviðstjóri
Úlfur Óskarsson, teymisstjóri innleiðingar og eftirfylgni
Johan Holst, teymisstjóri ráðgjafar og áætlanagerðar
Sigríður Þorvaldsdóttir, teymisstjóri með umsjón hvata- og stuðningsverkefna
Svið rannsókna, vöktunar og árangurs
Bryndís Marteinsdóttir sviðstjóri
Brynja Hrafnkelsdóttir, teymisstjóri vistkerfisrannsókna
Brynjar Skúlason, teymisstjóri aðferðafræði og árangursmats
Rán Finnsdóttir, teymisstjóri vöktunar
Svið þjóðskóga, landa og innviða
Hreinn Óskarsson sviðstjóri
Árni Eiríksson, teymisstjóri innviða
Garðar Þorfinnsson, teymisstjóri endurheimtarverkefna LOGS
Trausti Jóhannsson, teymisstjóri þjóðskóga
Valgerður Jónsdóttir, teymisstjóri plöntu- og fræmála
Svið reksturs, fjármála og stafrænnar þróunar
Gunnlaugur Guðjónsson sviðstjóri
Atli Guðjónsson, teymisstjóri landupplýsinga
Geir Waage, teymisstjóri bifreiða og húsnæðis
Bjarni Þór Haraldsson, teymisstjóri stafrænnar þróunar
Svið mannauðs og miðlunar og skrifstofa forstöðumanns
Hanna Þóra Hauksdóttir sviðstjóri
Ágúst Sigurðsson forstöðumaður
Hrefna Jóhannesdóttir, teymisstjóri stefnumótunar
Gildi Lands og skógar:
Þekking – Við byggjum allt okkar starf á gagnreyndri þekkingu.
Samstarf – Við leggjum áherslu á uppbyggilegt og faglegt samstarf.
Jákvæð áhrif – Við skiljum eftir okkur jákvæð spor fyrir komandi kynslóðir.

Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, ávarpar starfsmannafundinn á Hilton Hotel Nordica. Ljósmynd: Pétur Halldórsson.
