Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Skógarmálaráðherra Indlands gróðursetur reyni á Þórsmörk sem tákn um samstöðu

14. október 2026

Kirti Vardhan Singh, ráðherra utanríkis- og skógarmála á Indlandi, gróðursetti reynivið í heimsókn sinni á Þórsmörk og Goðaland laugardaginn 10. október. Erindið þangað var að kynnast af eigin raun þeim mikilvægu verkefnum sem unnið er að í vernd og eflingu náttúrunnar á svæðinu þar sem áhersla hefur verið lögð í heila öld á að vernda birkiskóglendi og stuðla að útbreiðslu þess.

Indversku gestirnir ásamt fulltrúum Lands og skógar og Útivistar. Ljósmynd: Hrafn Óskarsson.

Í fylgd með ráðherranum og föruneyti hans var R. Ravindra, sendiherra Indlands á Íslandi. Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga, landa og innviða hjá Landi og skógi tók þátt í að kynna þau verkefni sem unnið er að á svæðinu, ekki síst það mikla starf sem þar fer fram við að útbúa góða aðstöðu til gönguferða og annarrar útivistar og koma í veg fyrir að umferð ferðafólks valdi raski. Móttakan fór fram í Básum og tóku starfsmenn Lands og skógar á svæðinu ásamt félögum úr ferðafélaginu Útivist vel á móti ráðherra og fylgdarliði í stóra skálanum.

Singh ráðherra hafði óskað eftir því að fá að gróðursetja tré í ferðinni og varð reyniviður fyrir valinu. Með gróðursetningunni vildi hann vekja athygli á stóru indversku umhverfisátaki sem kallast „Ek Ped Maa Ke Naam“. Það þýðir „eitt tré í nafni móður“ á íslensku. Frumkvæði að átakinu hafði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sem hvatningu til almennings um að heiðra mæður sínar – og þar með móður jörð – með því að hlúa að lífi og græða land.

Haft var eftir Singh í kjölfar heimsóknarinnar að aðdáunarvert hefði verið að sjá það mikla starf sem unnið væri á Þórsmörk til að vernda og efla sérstætt náttúrulíf svæðisins. Einnig var haft á orði að heimsókn ráðherrans væri til marks um vaxandi samstarf og samstöðu meðal þjóða heims í loftslags- og skógræktarmálum.

Vel þótti hæfa að ráðherrann setti niður reynivið á Þórsmörk enda skipar reynirinn ákveðinn sess í þjóðtrú Íslendinga. Sú var hjátrúin að reyni fylgdu níu náttúrur vondar og níu góðar eins og Ágúst H. Bjarnason getur um í Íslenskri flóru sinni. Reynirinn myndar hvergi skóga á landinu en vex gjarnan í birkiskóglendi og verður þar áberandi, einkum þegar hann stendur í blóma snemmsumars og með berjum á haustin. Fræ hans berast burt í maga fugla og dreifast víða, líkt og skilaboð hinna indversku gesta um samstöðu í þágu náttúru og mannkyns.

Meðfylgjandi myndir tóku Hreinn Óskarsson og Hrafn Óskarsson. Á neðstu myndinni eru frá hægri: Isobel Cadec og Chas Goemans sem starfa hjá Landi og skógi á Þórsmörk, Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga, landa og innviða, Kirti Vardhan Singh ráðherra og sendiherrann R. Ravindra. Myndina tók Hrafn Óskarsson