Sérfræðingur skógarúttekta og loftslagsbókhalds
18. september 2024
Land og skógur leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu og vernd gróðurauðlinda á Íslandi með landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu. Nú leitum við að sérfræðingi til að stýra teymi skógarúttekta og loftslagsbókhalds skóglendis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Bókhald gróðurhúsalofttegunda vegna skógræktar, skóga, kjarrs og viðarafurða skógarhöggs.
Skýrslugerð um skógrækt og skóga til FAO og Forest Europe.
Landsúttekt á ræktuðum og náttúrulegum skógum.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í skógfræði eða skyldum fögum með áherslu á flæði gróðurhúsalofttegunda í skógum. Doktorspróf er kostur.
Þekking á sviði almennrar skógfræði með áherslu á greiningu og skráningu gróðurs og landgæða með tölfræðilegri úrvinnslu stórra gagnasafna.
Þekking og reynsla af stjórnun og teymisvinnu sem og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
Gott vald á ensku og íslensku er æskilegt.
Um fullt starf er að ræða sem hentar öllum kynjum. Starfið er óstaðbundið.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 7. október 2024.
Um stofnunina
Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.
Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmætasköpun innan Lands og skógar og alls landgræðslu- og skógræktargeirans.
Land og skógur hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku. Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Brynjar Skúlason (Brynjar.Skulason@landogskogur.is), sviðstjóri rannsókna og þróunar.