Sérfræðingur í loftslagsbókhaldsteymi
1. október 2025
Land og skógur óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í loftslagsbókhaldsteymi stofnunarinnar. Umsóknarfrestur er til 20. október 2025.

Stofnunin sinnir mikilvægu hlutverki í þeim hluta loftslagsbókhalds Íslands sem snýr að losun vegna landnotkunar (LULUCF). Þetta er mikilvægur og vaxandi málaflokkur og stofnunina vantar liðsauka. Land og skógur er þekkingarstofnun sem hefur það meginmarkmið að bæta gróður- og jarðvegsauðlindir þjóðarinnar og stuðla að sjálfbærri landnýtingu, með áherslu á náttúrumiðaðar lausnir. Stofnunin skal vakta auðlindirnar og stuðla að aukinni þekkingu auk þess að virkja og fræða almenning og hagsmunaaðila. Starfið er auglýst án staðsetningar en Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við þann hluta loftslagsbókhalds Íslands sem snýr að losun frá landnotkun.
Vinna að úrvinnslu og birtingu gagna vegna losunar frá landnotkun.
Fræðsla og kynning tengd losun frá landnotkun.
Þróunarstarf tengt loftslagsbókhaldi Íslands.
Önnur verkefni Lands og skógar.
Hæfniskröfur
Háskólagráða sem nýtist í starfi.
Þekking á náttúrufræði og úrvinnslu gagna er nauðsynleg.
Þekking á loftslagsbókhaldi Íslands er æskileg.
Góð færni í Excel er skilyrði.
Skipuleg vinnubrögð, frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi er nauðsynlegt.
Færni í að koma upplýsingum frá sér í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Færni í Office-forritum er nauðsynleg.
Góð færni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum og geta til að vinna sem hluti af stærra teymi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, svo sem áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Öllum umsóknum verður svarað. Auglýsingin getur gilt í sex mánuði frá birtingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2025
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Marteinsdóttir
sviðstjóri sjálfbærrar landnýtingar
bryndis.marteinsdottir@landogskogur.is
Sími: 664 9121
