Sautján félög nutu stuðnings Vorviðar 2025
20. janúar 2026
Alls voru gróðursettar ríflega 35 þúsund trjáplöntur í þeim verkefnum sem hlutu stuðning úr Vorviði á liðnu ári. Innan tíðar verður auglýst eftir umsóknum um stuðning til verkefna komandi sumars.

Kátur gróðursetningarhópur Barnaheilla í Biskupstungum. Ljósmynd frá Barnaheillum
Vorviður er verkefni sem Skógræktin stofnaði til í árslok 2020 í samræmi við aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Marmiðið með verkefninu var að efla tengsl við og styðja félagasamtök til átaks í skógrækt sem lið í að bæta landnýtingu í þágu loftslags. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið lagði til sérstaka fjárveitingu til verkefnisins.
Land og skógur tók við keflinu 2024 og þá var ákveðið að halda áfram með Vorviðarverkefnið en þó með örlítið breyttu sniði. Í stað þess að sjá félögum og samtökum fyrir fjármunum til kaupa á trjáplöntum að eigin vali var ákveðið að stuðningurinn yrði eingöngu í formi trjáplantna af þremur tegundum, birki, stafafuru og sitkagreni. Á árinu 2025 var sama fyrirkomulag haft nema hvað tveimur tegundum var bætt við, alaskaösp og rússalerki. Í fyrravoru voru áætlaðar 70.000 plöntur til verkefnisins.
Nítján félög og samtök sóttu um samtals 50.120 plöntur sem skiptust þannig, birki 8.790 stk., stafafura 14.320 stk., sitkagreni 12.350 stk., rússalerki 8.480 stk. og alaskaösp 6.180 stk. Þetta var töluvert undir því magni sem var í pottinum og því var hægt að verða við öllum umsóknunum. Fljótlega kom svo í ljós að ekki var hægt að verða við beiðnum um lerkiplöntur þar sem mikil forföll urðu á lerkiræktun í gróðrarstöðvum.
Framkvæmd verkefnisins gekk að flestu leyti vel. Sautján aðilar sóttu þær plöntur sem þeim hafði verið úthlutað, samtals 35.203 plöntur að verðmæti 3.636.024 kr. Þetta kemur fram í ársskýrslu Vorviðar fyrir nýliðið ár. Fljótlega verður auglýst eftir umsóknum um stuðning frá Vorviði til verkefna á komandi sumri.
Að neðan er mynd frá gróðursetningu á vegum Barnaheilla í Skálholti Biskupstungum og önnur af ungum skógræktarmönnum hjá Skógræktarfélagi Stykkishólms. Félögunum tveimur er þakkað fyrir myndirnar.


