Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Samningur um Landgræðsluskóga endurnýjaður til ársins 2029

15. maí 2024

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, og Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, undirrituðu í dag, 15. maí, samning um framkvæmd Landgræðsluskóga til ársins 2030.

Undirritun samnings um Landgræðsluskóga. Ljósmynd frá matvælaráðuneytinu.

Frá þessu er sagt í frétt á vef matvælaráðuneytisins. Landgræðsluskógar eru samstarfsverkefni ríkisins og skógræktarfélaganna. Markmið þess er að græða lítt og ógróið land með fjölbreyttum skógum og stuðla þannig að ræktun skóga til útivistar fyrir almenning, bættum kolefnisbúskap lands, endurheimt vistkerfa og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni. Verkefnið hófst árið 1990 og var hleypt af stokkunum í tilefni 60 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands.

Í verkefninu hefur verið unnið að ræktun Landgræðsluskóga á um 150 svæðum um allt land og hafa alls verið gróðursettar frá upphafi liðlega 24,2 milljónir plantna á um 770 km2 svæði. Land og skógur hefur eftirlit með framkvæmd samningsins.

Langflest ræktunarsvæði Landgræðsluskóga eru á landi í eigu sveitarfélaga, ríkis eða skógræktarfélaganna sjálfra. Skógræktarfélögin sjá um framkvæmd verkefnisins á hverjum stað, að útvega land, friðun og vörslu, gróðursetningu og umhirðu.

Samstarf ríkisins við skógræktarfélögin er byggt á því að unnið sé að þeirri stefnu sem stjórnvöld hafa sett. Samningurinn styður við ýmis markmið Lands og lífs, stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt.