Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Rigningarspáin rættist ekki á Skógardeginum mikla

24. júní 2026

Matej Cieslar frá Skógarmönnum ehf. á Akureyri hreppti Íslandsmeistaratitilinn í skógarhöggi á Skógardeginum mikla sem fram fór á Hallormsstað á laugardaginn var. Um fimmtán hundruð manns sóttu hátíðina og nýjung þetta árið var keppni í frisbígolfi.

Teymt undir börnum á Skógardeginum mikla í Hallormsstaðaskógi. Ljósmynd: Maria Eir Jónssdóttir

Skógardagurinn mikli var nú haldinn nítjánda sinn og telur Þór Þorfinnsson skógarvörður að um 1500 manns hafi komið í Trjásafnið í Mörkinni þrátt fyrir að í veðurspánni hafi verið útlit fyrir rigningu. Sú spá rættist þó ekki frekar en venjulega, segir Þór, og nutu gestir sín í góðu veðri í skóginum við fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Náttúruskóli Austurlands sá um leiki og þrautir fyrir börnin og meðal annars var teymt undir börn á hestum. Á sviði flutti ungt tónlistafólk á Héraði ýmiss konar tónlist og nýjung þetta árið var frísbígolfmót sem fram fór á frisbígolfvellinum vinsæla við Guttormslund.

Að venju var heilgrillað naut, í þetta sinn reyndar kvíga ættuð frá Gilsárteigi í Eiðaþingá. Sauðfjárbændur grilluðu lambakjöt og pylsur runnu út í mannskapinn. Að sjálfsögðu var ketilkaffi og eldbakaðar lummur í boði líka eins og endranær á Skógardeginum mikla.

Dagskráin endaði svo á úrtslitakeppninni Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi. Sjö tóku þátt í mótinu þetta árið og Íslandsmeistari varð Matej Cieslar frá Skógarmönnum ehf. á Akureyri sem lauk keppnisgreinum á 410 sekúndum. Bjarki Sigurðsson, starfsmaður Lands og skógar á Hallormsstað, varð í öðru sæti á 441 sekúndu og Ýmir Knútur Eiríksson Fjósakambi þriðji með 515 sekúndur. Skúli Björnsson stýrði keppninni og dómarar voru Þröstur Eysteinsson og Vignir Elvar Vignisson. Meðfylgjandi myndir frá hátíðinni tók Maria Eir Jónssdóttir.