Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ráðherra og þingmenn heimsækja Land og skóg

6. mars 2025

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kom ásamt fylgdarliði í Gunnarsholt fimmtudaginn 27. febrúar í formlega heimsókn til Lands og skógar. Þingmenn komu líka í heimsókn í kjördæmaviku.

Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, tók á móti ráðherra ásamt fleira forystufólki stofnunarinnar. Starfsemin og verkefnin voru kynnt. Nokkur mikilvæg mál voru reifuð sérstaklega við ráðherra svo sem þær hugmyndir að setja kraft í endurheimt votlendis og aðrar landbætur á jörðum í eigu ríkisins og einnig nauðsyn þess að reisa nýtt fræhús á Vöglum til að auka framleiðslu á lerkiblendingnum Hrymi. Rætt var um fjármögnun umbótaáætlunar vegna LULUCF og tímabundin framlög til stofnunarinnar sem falla niður árið 2026. Minnt var á nauðsyn þess að unnið verði nýtt jarðvegskort fyrir Ísland og sömuleiðis eflingu hvataverkefna þar sem meðal annars hefur verið stungið upp á að efnt verði til nýrrar þjóðargjafar líkt og gert var á ellefu hundruð ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974.

Frá kynningu Ágústs Sigurðssonar á starfsemi Lands og skógar í Gunnarsholti fyrir ráðherra og fylgdarliði. Ljósmynd: Hreinn Óskarsson

Ráðherra og fylgdarlið hans sýndi mikinn áhuga á starfsemi og málefnum Lands og skógar. Þau sýndu góðan skilning á verkefnum stofnunarinnar og mikilvægi þeirra. Nú er unnið að breyttu skipulagi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem meðal annars felst í því að fagskrifstofur verða aðeins tvær. Sú sem Land og skógur tilheyrir verður undir stjórn Björns Helga Barkarsonar.

Ásamt því að fá kynningu á starfsemi stofnunarinnar og verkefnum skoðaði ráðherra aðstöðuna í Gunnarsholti, sérstaklega þá miklu og góðu aðstöðu sem þar er til fræverkunar. Land og skógur þakkar Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kærlega fyrir komuna og fylgdarliði hans.

Í kjördæmaviku komu einnig þrír þingmenn Samfylkingarinnar í heimsókn í Gunnarsholt, þau Víðir Reynisson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Eydís Ásbjörnsdóttir. Þeim er sömuleiðis þakkað fyrir komuna. Á skrifstofuna á Egilsstöðum kom líka Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar.

Frá vinstri: Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, annar frá vinstri ásamt þremur Samfylkingarþingmönnum í heimsókn í Gunnarsholti 25. febrúar 2025, þeim Víði Reynissyni, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Eydísi Ásbjörnsdóttur.