Ráðherra afhendir nýja fræhúsið á Vöglum
5. nóvember 2026
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heimsótti starfstöð Lands og skógar á Vöglum í Fnjóskadal föstudaginn 30. október. Ráðherra var kynnt starfsemi stofnunarinnar á Vöglum en aðalerindi hans var að skoða nýja fræhúsið sem risið er á Vöglum og gerir kleift að stórauka framleiðslu á lerkiblendingnum Hrymi. Jafnframt skoðaði Jóhann Páll eldaskálann sem tekinn var formlega í notkun í Vaglaskógi á liðnu sumri.
Afhending nýja fræhússins handsöluð. Frá vinstri: Brynjar Skúlason, Valgeir Davíðsson, Ágúst Sigurðsson, Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra og Valgerður Jónsdóttir. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Sagt var frá nýja fræhúsinu í frétt á vef Lands og skógar fyrr í haust á meðan sérfræðingar frá Eistlandi unnu að uppsetningu þess. Húsið stendur nú fullgert en þó er eftir að koma þar fyrir ýmsum búnaði áður en hægt verður að koma þar fyrir úrvalstrjám af rússalerki og evrópulerki sem notuð eru til þeirrar víxlunar sem gefur hinn framúrskarandi blending sem kallaður er Hrymur.

Viður í stað olíu
Fullkomið hitastýringarkerfi fylgir húsinu og eru sérfræðingar væntanlegir frá Eistlandi til að setja það upp ásamt því að yfirfara húsið og gera lítils háttar lagfæringar. Nauðsynlegt er einnig að setja upp hitunarbúnað í húsinu því þegar líður á veturinn og sól hækkar á lofti hlýnar þar innan dyra þótt úti sé enn kalt og þá geta trén í húsinu farið að lifna af vetrardvalanum. Eftir það verður að tryggja að ekki frjósi í húsinu.
Í eldra fræhúsinu sem stendur við hlið þess nýrra er hitunarbúnaður sem kyntur er með hitaveitu eftir því sem hún dugar en á mestu álagstímum hefur þurft að grípa til olíukyndingar þar sem ekki er nægjanlegt heitt vatn í boði á Vöglum. Stefna ríkisins er að útrýma sem allra fyrst allri olíunotkun til húshitunar á Íslandi og hefur Orkusjóður í umsjón Umhverfis- og orkustofnunar stutt orkuskipti í slíkum tilfellum víða um land. Í ráði er að koma upp viðarkyndingu á Vöglum sem komi í stað olíukyndingarinnar og geti fullnægt allri hitaorkuþörf í húsum Lands og skógar á Vöglum á álagstímum. Í kyndistöðinni yrði brennt grisjunarviði sem til fellur á staðnum og myndi ella liggja ónýttur í skóginum og rotna þar. Kolefnislosun stöðvarinnar yrði því ekki viðbótarlosun og kyndingin því kolefnishlutlaus.

Grisjun vaxandi þáttur
Í heimsókn Jóhanns Páls að Vöglum fékk hann ásamt Stefáni Guðmundssyni ráðuneytisstjóra og Lárusi Ólafssyni aðstoðarmanni kynningu á starfsemi Lands og skógar á Vöglum sem felst í umsjón þjóðskóganna á Norðurlandi, móttöku gesta og rekstri tjaldsvæða á Vöglum og margvíslegum tengdum verkefnum. Valgerður Jónsdóttir, teymistjóri plöntu- og fræmála, sagði frá starfseminni í fjarveru skógarvarðar.
Grisjun er vaxandi liður í starfinu en hefur þó verið sinnt alla tíð frá því fyrst var skipað í embætti skógarvarðar á Vöglum árið 1908. Birkiskógurinn er nú hærri og beinvaxnari en þá var enda bestu trén jafnan skilin eftir við grisjun. Löng hefð er fyrir nýtingu birkiviðar sem eldiviðar og til reykingar en nýting timburs af stórvaxnari tegundum fer nú einnig vaxandi eftir því sem ræktaðir skógar eldast. Á Vöglum fara líka fram rannsóknir í sérstökum gámi með stýrðum ræktunaraðstæðum auk áðurnefndrar framleiðslu á trjáfræi.

Ræktun hefst næsta sumar
Auk Hryms er ráðgert að aukin aðstaða á Vöglum nýtist til kynbótastarfs á öðrum trjátegundum til að auka gæði í skógrækt á Íslandi með betri efniviði til ræktunar. Brynjar Skúlason skógerfðafræðingur sagði frá þessari starfsemi og nefndi meðal annars hugmyndir um ræktun á úrvalsefniviði af hengibirki. Trjákynbætur eru nauðsynlegur hluti af skógræktarstarfi og hafa raunar aldrei verið nauðsynlegri en nú á tímum loftslagsbreytinga þegar mikilvægt er að vinna að því að trjátegundir, bæði villtar og ræktaðar, geti þolað breytingarnar og þrifist við breyttar aðstæður.
Ráðgert er að ræktun í nýju fræhúsi á Vöglum hefjist næsta sumar en nokkur ár tekur fyrir trén að byrja að þroska fræ. Nýja húsið er hátt í 1.700 fermetrar að stærð en það eldra um eitt þúsund. Með þessari auknu aðstöðu telur Valgerður Jónsdóttir að framleiðslugetan tvöfaldist og verði í það minnsta tvær milljónir spírandi Hrymsfræja. Með áframhaldandi kynbótum megi bæði auka gæði fræsins og afköstin enn frekar. Takist vel til sé mögulegt að uppskera allt að þrjár milljónir fræja í fyllingu tímans. Hrymur hentar vel til ræktunar á rýru landi í öllum landshlutum, langur tími líður milli fræára og auðvelt er að halda sjálfsáningu hans í skefjum. Hann vex í það minnsta tvöfalt betur en rússalerki og bindur þar af leiðandi mikið kolefni. Lerkiskógar eru bjartir með auðugum botngróðri.

Ketilkaffi í nýja eldaskálanum
Þegar ráðherra hafði skoðað fræhúsið nýja tókust þeir Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, í hendur til merkis um að Land og skógur hefði nú formlega tekið við húsinu nýja sem reist var fyrir sérstaka fjárveitingu frá Alþingi. Kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdina hljóðaði upp á um 100 milljónir króna og hefur hún staðist. Ráðherra lauk heimsókn sinni að Vöglum með því að litast um í eldaskálanum sem tekinn var formlega í notkun í Vaglaskógi í sumar og var reistur fyrir framlög úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Þar var að sjálfsögðu boðið upp á ketilkaffi.
Tengdar fréttir:

