Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Ráðherra afhendir Flugsafni Íslands merkan grip úr úr landgræðslusögunni

3. nóvember 2026

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, afhenti Flugsafni Íslands formlega „Þristinn“ sögufræga, Pál Sveinsson, við hátíðlega athöfn á Akureyrarflugvelli föstudaginn 30. október. Flugvél sú gegndi stóru hlutverki í uppgræðslu- og landbótastarfi á Íslandi um áratugaskeið og er afhendingin ekki einungis mikilvæg fyrir flugsögu Íslands heldur einnig fyrir sögu þeirrar hörðu baráttu við roföflin sem háð var á liðinni öld.

Formleg afhending TF-NPK. Frá hægri: Steinunn María Sveinsdóttir, Ágúst Sigurðsson, Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra, Sveinn Runólfsson og Tómas Dagur Helgason.

Ráðherra afhenti vélina fyrir hönd ríkisins, Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, fyrir hönd stofnunarinnar en fyrir hönd Þristavina þeir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri, og Tómas Dagur Helgason, formaður Þristavina. Sá félagsskapur hefur átt stóran þátt í að halda vélinni við frá því að hún var tekin úr notkun við landgræðsluverkefni og varðveita sögu hennar.

Flugvélin var nefnd Páll Sveinsson eftir Páli landgræðslustjóra sem var mikill frumkvöðull í landgræðslumálum hérlendis og stóð meðal annars fyrir því að flugvélar yrðu nýttar til dreifingar á áburði og fræi. Vélin fékk þá líka einkennisstafina TF-NPK sem vísa til helstu áburðarefnanna, niturs, forsfórs og kalíns.

Í ávarpi sínu við afhendingu Páls Sveinssonar sagði ráðherra að vélin væri vitnisburður um framsýni og metnað fyrri kynslóða við að bregðast við alvarlegri landhnignun og jarðvegseyðingu. Með afhendingunni væri tryggt að þessi mikilvægi hluti íslenskrar umhverfis- og flugsögu yrði varðveittur til framtíðar og aðgengilegur almenningi.

Með notkun flugvéla til áburðar- og frædreifingar var hugmyndin sú að ná mætti betur til svæða sem erfitt væri eða ómögulegt að athafna sig á til landgræðslu með öðrum hætti svo sem á víðáttumiklum afskekktum svæðum á hálendinu. TF-NPK var sérstaklega útbúin til dreifingar á áburði og fræi og var um árabil stórvirkasta verkfæri Landgræðslunnar í baráttunni gegn gróðureyðingu og uppblæstri. Sveinn Runólfsson tók einnig til máls við afhendinguna og rifjaði upp að þessi flugstarfsemi hefði markað tímamót í sögu landgræðslu á Íslandi. Flugdreifing áburðar og fræs hefði gert kleift að stórauka umfang aðgerða og stuðla að endurheimt gróðurs á hundruðum ferkílómetra lands.

Við athöfnina var líka tíundað það góða samstarf sem verið hefur um varðveislu vélarinnar. Nú fær vélin varanlegt heimili þar sem almenningur getur kynnt sér sögu hennar og mikilvægi. Páll Sveinsson hefur ekki verið flughæfur síðustu árin og ljóst þykir að tugi milljóna króna þyrfti til að koma vélinni í flughæft ástand á ný, tryggja þjálfun flugmanna og þjónustu flugvirkja svo halda mætti henni gangandi. Fram kom við athöfnina að sá draumur væri ekki úti en heldur ólíklegt þætti að hann myndi rætast.

Flugsafn Íslands varðveitir fjölda merkra loftfara sem tengjast samgöngu-, atvinnu- og mannlífssögu þjóðarinnar. Með komu Páls Sveinssonar bætist við safnið gripur sem ekki einungis hefur gildi fyrir landgræðslusöguna því flugvélin þjónaði áður farþegaflugi á Íslandi í áratugi á vegum Flugfélags Íslands en kom upphaflega til landsins sem herflugvél á vegum bandaríska hersins á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Páll Sveinsson hefur átt athvarf í Flugsafni Íslands um árabil, framan af yfir vetrarmánuðina en síðustu árin allan ársins hring. Þar hefur hann verið einn af megingripum safnsins og við þessi tímamót er tryggt að hann verður áfram merkur minnisvarði um söguna sem hluti af safnkosti Flugsafns Íslands eins og fram kom hjá Steinunni Maríu Sveinsdóttur, safnstjóra Flugsafns Íslands, sem tók við vélinni fyrir hönd safnsins og ávarpaði einnig samkomuna.

Meðfylgjandi myndir tók Pétur Halldórsson við athöfnina í Flugasafni Íslands 30. október þar sem góður hópur starfsfólks stofnunarinnar var viðstaddur og stillti sér upp við vélina ásamt Sveini Runólfssyni.