Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Óskað eftir fyrirlestrum og veggspjöldum á Fagráðstefnu skógræktar 2024

10. janúar 2024

Fagráðstefna skógræktar 2024 verður haldin í Hofi á Akureyri 20.-21. mars. Óskað er eftir fyrirlestrum fyrir seinni dag ráðstefnunnar ásamt veggspjöldum sem hanga munu uppi meðan ráðstefnan stendur.

Hof Akureyri

Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er skógarauðlindin innviðir og skipulag. Fagráðstefna skógræktar verður nú haldin í samstarfi hinnar nýju stofnunar, Lands og skógar, , Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarfélags Íslands, Skógfræðingafélags Íslands og Bændasamtaka Íslands.

Fyrirlestrar og umræður um þema mynda dagskrá fyrri dags ráðstefnunnar en seinni daginn er rými fyrir hvers kyns málefni sem tengjast skógum og skógrækt, rannsóknum, skógtækni og skyldum efnum. Sækja má um pláss í dagskránni fyrir fyrirlestra á sérstöku eyðublaði og sömuleiðis ef fólk vill leggja til veggspjald á veggspjaldakynningu ráðstefnunnar.

Frestur til að skila inn tillögum að erindum er 31. janúar 2024. Öllum umsækjendum verður svarað í fyrstu viku febrúarmánaðar.

Frestur til að skila inn tilllögum að veggspjöldum er 12. mars 2024.

Skráning á ráðstefnuna hefst fyrri hluta febrúarmánaðar.

Fagráðstefna skógræktar er eins og heitið gefur til kynna vettvangur þekkingarmiðlunar og umræðu í skógargeiranum. Ráðstefnan hefur verið haldin í rúma tvo áratugi og hleypur til milli landshluta frá ári til árs. Á árinu sem nú er að líða var hún haldin í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði og þar áður á Hótel Geysi í Haukadal.

Land og skógur

Hafðu samband

Netfang: landogskogur@landogskogur.is
Símanúmer: 470 2000
Símanúmer: 488 3000

Aðalskrif­stofa

Kennitala: 671123-0850