Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Önnur útgáfa gæðaviðmiða um val á landi til skógræktar

28. maí 2026

Út er komin hjá Landi og skógi endurskoðuð útgáfa gæðaviðmiða um val á landi til skógræktar. Kveðið var á um útgáfu slíkra viðmiða í Landi og lífi, stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt.Viðmiðin verða nú tekin til notkunar við mat skógræktáforma skv. reglugerð um Reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt nr. 50/2026. Stofnunin mælir með því að sveitarfélög og aðrir aðilar nýti sér gæðaviðmiðin við afgreiðslu framkvæmdaleyfa.

Göngubrúin yfir Svarfaðardalsá við Hánefsstaðareit. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Fyrsta útgáfa gæðaviðmiða Lands og skógar um val á landi til skógræktar var birt í september á liðnu hausti. Henni var ætlað að vera beitt til reynslu hjá stofnuninni svo sníða mætti af henni agnúa og gera viðmiðin að því nytsamlega tóli sem þeim er ætlað að vera. Í ljósi reynslunnar og athugasemda sem gerðar hafa verið við fyrstu útgáfuna hefur stýrihópur verkefnisins unnið að endurskoðun þeirra. Gert er ráð fyrir að viðmiðin verði notuð í sumar við skógræktarskipulag og gerð skógræktaráætlana. Í haust er svo ráðgerður fundur með skógræktarráðgjöfum Lands og skógar til að meta reynsluna af notkun gæðaviðmiðanna.

Stýrihópur var settur á laggirnar hjá Landi og skógi í ágúst 2024 með það hlutverk að samræma þau verkefni hjá stofnuninni sem falla undir staðla og gæðaviðmið, skipuleggja vinnulag og tryggja nauðsynlegt samráð við stofnanir, sérfróða aðila sem og hagaðila. Þetta er í samræmi við stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt (Land og líf) þar sem kveðið er á um aðgerð 2.3 sem felur í sér að þróa og innleiða ný gæðaviðmið við val á landi til skógræktar.

Í stýrihópnum sitja Birkir Snær Fannarsson lögfræðingur (formaður), Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri rannsókna, vöktunar og árangurs, og Brynjar Skúlason, skógerfðafræðingur og teymisstjóri aðferðafræði og árangursmats. Páll Sigurðsson skipulagsfulltrúi er starfsmaður stýrihópsins sem væntanlega lýkur störfum á komandi hausti.

Þessi önnur útgáfa gæðaviðmiðanna er eins og sú fyrri niðurstaða af samráði við aðila, bæði innan og utan stofnunar. Eðli gæðaviðmiða sem þessara er að vera reglulega til endurskoðunar en ekki liggur fyrir hvernig staðið verður að áframhaldandi þróun þeirra.