Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Nýtir þú eða veitir ráðgjöf um land en ert ekki bóndi?

20. apríl 2026

Óskað er eftir þátttöku í spurningakönnun um hvernig úthagabeit og önnur landnotkun geta farið betur saman og hvaða hlutverk stafræn tækni og upplýsingar geta haft í því samhengi.

Taktu þátt í spurningakönnun um úthagabeit og tæknilausnir

Könnunin er á vegum evrópska samstarfsnetsins DIGI-Rangeland, þar sem 11 lönd vinna saman að því að skoða hvernig stafræn tækni getur stutt við sjálfbæra nýtingu úthaga og betri samræmingu milli ólíkrar landnotkunar. Leitað er eftir sjónarmiðum þeirra sem nýta eða hafa hagsmuni af landi en stunda ekki búfjárbeit, svo sem aðila á sviði náttúruverndar, ferðaþjónustu, útivistar, og auðlindastjórnunar, en einnig þeirra sem vinna að skipulagi lands og ráðleggja um nýtingu þess.

Markmið könnunarinnar er að:

  • Auka skilning á samskipti úthagabeitar og annarrar landnotkunar.

  • Greina helstu áskoranir og árekstra.

  • Kanna hvernig upplýsingar og starfræn verkfæri geta stuðlað að betri samvinnu og sátt um landnýtingu.

Mikilvægt er að fá fram fjölbreytt sjónarmið til að bæta þekkingu á samspili ólíkrar landnotkunar. Svör þín skipta máli og munu nýtast við að móta raunhæfar lausnir til framtíðar.

Svara könnun