Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Ný útgáfa Skógarkolefnis

13. maí 2026

Skógarkolefni, kröfusett fyrir kolefnisverkefni í skógrækt, er komið út í nýrri útgáfu sem ber númerið 2.1. Nýja útgáfan tók gildi 11. maí 2026. Nýjustu breytingarnar eru minni háttar og er þeim ætlað að veita skýrari upplýsingar um kröfur og leiðbeiningar.

Helstu breytingarnar voru gerðar á köflum 2.2 og 3.3 frá eldri útgáfu:

  • Megintilgangurinn var að skerpa lýsinguna á því hvernig gerð skógræktaráætlunar skuli fara fram og einfalda kortlagningarreglur en jafnframt að leggja áherslu á tilgang skógstjórnunaráætlunar fyrir sannprófunarferlið.

  • Sömuleiðis þurfti að skerpa á kröfunum í kafla 3.3 til að skýra áreiðanleika niðurstaðna úr Skógarkolefnisreikni.

  • Loks voru gefnar út skýrari og sveigjanlegri reglur um kolefnisútreikninga með tilliti til þéttleika gróðursetninga.

Frá því að Skógarkolefni 2.0 kom út hefur komið til sögunnar íslenskur staðall, ÍST 95: Leiðbeiningar um sjálfbæra skógrækt. Hefur vísunum til hans verið bætt við textann en úreltar tilvísanir fjarlægðar.

Fyrirmynd Skógarkolefnis var breska kröfusettið UK Woodland Carbon Code og fyrsta útgáfa Skógarkolefnis sem kom út í árslok 2019 var að mestu leyti þýðing og staðfærsla á því breska. Vorið 2023 kom út útgáfa 2.0 af Skógarkolefni í samræmi við þróun íslensks laga- og regluumhverfis og tilkomu tækniforskriftarinnar ÍST TS 92:2022 Kolefnisjöfnun: Kröfur með leiðbeiningum (Carbon offsetting: Specification with guidance) sem er að finna á vef Staðlaráðs Íslands. Eðli slíkra krafna er að vera í sífelldri þróun með stöðugum endurbótum í átt að auknum gæðum og í takti við þróun samfélags og umhverfis.

Skógarkolefni 2.1 er að finna á vefnum skogarkolefni.is. Textinn sem gildir er sá sem er að finna á vefnum og vísa skal til hans þar. PDF-skrá með kröfusettinu er aðgengileg til hagræðis fyrir notendur, svo sem til að prenta út og hafa til lestrar en ekki til að vísa í.