Ný umbótaáætlun til móts við auknar kröfur um loftslagsbókhald landnotkunar
1. september 2026
Land og skógur hefur gefið út Umbótaáætlun 2025-2027 sem miðuð er að því að styrkja bókhald Íslands fyrir losun gróðurhúsalofttegunda og bindingu kolefnis vegna landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar (LULUCF). Áætlunin gildir til ársins 2027 og tekur við af fyrri áætlun.

Brot úr forsíðu Umbótaáætlunar 2025-2027
Markmiðið er að auka gæði gagna, uppfylla alþjóðlegar kröfur og tryggja að traustur grunnur sé fyrir mati á árangri Íslands í viðleitni landsins til að ná kolefnishlutleysi.
Umbótaáætlunin er unnin að ósk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og er meðal annars byggð á ábendingum frá úttektarnefndum á vegum framkvæmdastjórnar ESB og loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, UNFCCC.
Í umbótaáætluninni eru settar fram 23 aðgerðir. Þeim er skipt í fjóra verkþætti sem eru:
Greining á regluverkinu og uppsetning gæðaferla.
Umbætur á landupplýsingum.
Umbætur á mati á losun og bindingu með gerð nýrra og nákvæmari bindi- og losunarstuðla.
Aukin upplýsingagjöf.
Að auki er í áætluninni bent á sex atriði sem þyrfti að huga að á næstu árum til að mæta auknum alþjóðlegum kröfum um loftslagsbókhald.
Umbótaáætlun 2025-2027 (nýtt)
