Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Mikill áhugi á verkefnum Lands og skógar á Landbúnaðarsýningunni

13. október 2026

Fjöldi fólks staldraði við í bás Lands og skógar á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll sem fór fram dagana níunda til ellefta október. Þar náðist mikilvægt samtal um stuðningsverkefni stofnunarinnar sem nú eru í þróun í kjölfar setningar nýrrar reglugerðar. Gestirnir höfðu um margt að ræða og margs að spyrja og ekki spillti ketilkaffið sem dugði vel til að fá fólk til að staldra við.

Gestir spá í fræ og áburð í spjalli við Jónínu Sigríði Þorláksdóttur sviðstjóra í bás Lands og skógar á Landbúnaðarsýningunni í Laugaralshöll. Ljósmynd: Fífa Jónsdóttir.

Sýnendur á Íslenskum landbúnaði að þessu sinni voru hátt í hundrað talsins og aldrei hafa fleiri gestir sótt sýninguna sem haldin er fjórða hvert ár. Í bás Lands og skógar var ýmislegt að sjá, skoða og fræðast um til viðbótar við upplýsingar og fróðleik um stuðningsverkefnin. Þar voru sýnishorn af trjáviði og trjáplöntum, ýmiss konar fræ, strá af melgresi og fleira af þeim toga sem vakti forvitni og spurningar sem leitt gátu af sér gjöfult spjall um tilgang, markmið, árangur og ávinning af starfi Lands og skógar.

Snemma á árinu kom út ný reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni Lands og skógar sem stofnunin vinnur nú að því að innleiða. Fyrirkomulag stuðnings hjá stofnuninni er þó að mestu leyti í óbreyttri mynd en unnið er að því að samhæfa ólík verkefni og þróa þau í samræmi við hina nýju reglugerð. Með nýrri sameinaðri stofnun og endurskoðuðu regluverki gefast ýmis tækifæri til þróunar, svo sem að heilu jarðirnar verði teknar út með tilliti til allra þeirra verkefna sem Land og skógur veitir ráðgjöf um og fjármagn til. Hugmyndir um slíkt eru í þróun og meginmarkmiðið með bás Lands og skógar að þessu sinni var að gefa færi á samtali við ráðgjafa stofnunarinnar um slíkar hugmyndir auk umræðu um afmarkaða þætti stuðningsins, hvort sem það snerti uppgræðslu, skógrækt, skjólbelti, endurheimt votlendis, varnir gegn landbroti eða annað.

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 er haldin í samstarfi við Bændasamtök Íslands. Meðfylgjandi myndir tók Fífa Jónsdóttir. Við sjáum á neðri myndunum tveimur Ingunni Söndru Arnþórsdóttur héraðsfulltrúa og Sigurjón Einarsson, sérfræðing og ráðgjafa um varnir gegn landbroti, tilbúin að taka á móti gestum í bás Lands og skógar, en líka Ágúst Sigurðsson, forstöðumann Lands og skógar, og Gústaf Jarl Viðarsson skógræktarráðgjafa á spjalli við gesti á sýningunni.

Vefur sýningarinnar

Reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt