Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Mikið gramsað í bás Lands og skógar á Vísindavöku

1. október 2026

Áhugasamir gestir í bás Lands og skógar á Vísindavöku grömsuðu meðal annars í mismunandi gerðum jarðvegs, skoðuðu „gullbjöllur“ og fleiri pöddur í víðsjá.

Smádýr skoðuð í víðsjá. Ljósmynd: Fífa Jónsdóttir

Vísindavaka er árlegur viðburður sem haldinn er á vegum Rannís í samvinnu við háskólana á Íslandi og ýmsar stofnanir. Almenningi er boðið í sannkallaða vísindaveislu þar sem fremsta vísindafólk landsins sýnir og segir frá rannsóknum og nýsköpun á lifandi og gagnvirkan hátt.

Að þessu sinni fór Vísindavaka fram laugardaginn 26. september Laugardalshöll og stóð frá 12 og 17. Þema Lands og skógar þetta árið var „fjölbreyttur jarðvegur fyrir heilbrigð vistkerfi“.

Stöðugur straumur var af fólki í básinn allan tímann, fullorðnum og börnum, og nóg að gera fyrir fulltrúa Lands og skógar sem stóðu þar vaktina. Til sýnis voru nokkrar gerðir af íslenskum jarðvegi og voru börnin spurð hvort þau þekktu muninn á mismunandi jarðvegi. Úr þessu varð á endanum dálítið drullumall en það jók bara á stemmninguna.

Auk jarðvegssýna voru líka til sýnis lifandi smádýr, til dæmis asparglytta, skaðvaldur sem herjar á trjá- og runnategundir af víðiætt. Asparglytturnar eru gylltar og gljáandi og kölluðu krakkarnir þær „gullbjöllur“. Vinsælt var að rýna í þessar pöddur og önnur smádýr sem gestirnir fengu að fræðast um í leiðinni.

Mikill áhugi var líka hjá þeim fullorðnu sem stöldruðu við í bás Lands og skógar að fræðast um votlendisjarðveginn sem þar var til sýnis.

Vísindavaka er samevrópskt verkefni og fer fram samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í september undir heitinu Researchers' Night.

Land og skógur þakkar öllum sem heimsóttu bás stofnunarinnar á Vísindavöku kærlega fyrir komuna! Meðfylgjandi myndir tók Fífa Jónsdóttir. Á neðstu myndinni eru fulltrúar Lands og skógar í básnum, þau Hilmar Njáll Þórðarson, Fífa Jónsdóttir, Hrafnhildur Vala Friðriksdóttir, Brynja Hrafnkelsdóttir og Sólveg Sanchez.