Málþing um sjálfbæra landnýtingu úthaga til beitar og annarra nota - dagskrárefni óskast
28. október 2026
Í tilefni af alþjóðlegu ári beitilanda og beitarbúskapar verður haldið málþing í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri fimmtudaginn 19. nóvember.

Fram í heiðanna ró
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt árið 2026 sem alþjóðlegt ár beitilanda og beitarbúskapar (International Year of Rangelands and Pastoralists (IYRP)). Markmiðið er meðal annars að vekja athygli á mikilvægi beitilanda og úthaga, sjálfbærri landnýtingu, endurheimt lands og hlutverki bænda og annarra landnotenda í þeim efnum. Að þessu tilefni stendur Land og skógur ásamt Landbúnaðarháskóla Íslands að viðburði á Hvanneyri 19. nóvember þar sem skýr áhersla verður lögð á íslenskar aðstæður, veruleika, markmið og framtíðarsýn.
Staðsetning: Hvanneyri, Ársalur á efstu hæð í Ásgarði, aðalbyggingu LbhÍ
Tími: fimmtudagur 19. nóvember 2026, kl. 10.00-15.00
Drög að dagskrá
10.00–10.15 | Setning og inngangur |
10.15–12.30 | Erindi og reynslusögur |
12.30–13.30 | Hádegismatur |
13.30–14.30 | Vinnustofa / umræðuhópar |
14.30–15.00 | Samantekt og næstu skref |
Í dagskránni er hugmyndin að rannsóknir, stefnumótun og reynsla fléttist saman. Áherslur geta til dæmis verið á:
Beitarnýtingu og beitarstjórnun
Viðhald og eflingu landgæða
Endurheimt vistkerfa
Rannsóknir og vöktun
Nýtingu gagna og tæknilausna
Reynslu bænda og landgræðslufélaga,
Stuðningskerfi, regluverk og framtíðarsýn
Land og skógur hefur með höndum margvíslegt rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverk sem tengist þessum viðfangsefnum og er í samskiptum við bændur og aðra landnotendur í gegnum ýmis verkefni á sviði landbóta, landvöktunar og fleira. Landbúnaðarháskóli Íslands hefur einnig rannsókna- og fræðsluhlutverk á sömu sviðum. Skólinn er aðili að Evrópuverkefninu DIGIRangeland þar sem kannað er hvernig stafræn tækni og nýsköpun (DTI) getur stutt við sjálfbæra búfjárrækt sem byggist á úthagabeit.
Óskað eftir efni á dagskrána
Stofnanirnar tvær auglýsa hér með eftir hugmyndum um dagskrárefni fyrir málþingið, helst stutt erindi eða reynslusögur. Allir sem eitthvað telja sig hafa fram að færa eru hvattir til að senda inn hugmyndir. Unnið verður úr þeim og endanleg dagskrá útbúin í kjölfarið. Vinsamlega sendið hugmyndir um framlög ekki seinna en 4. nóvember í eftirfarandi netföng:
Jóhannes Sveinbjörnsson
– jois@lbhi.isSigríður Þorvaldsdóttir
– sigga@logs.is
Boðið verður upp á hádegismat og kaffihressingu. Takið daginn frá. Kallað verður eftir skráningum þegar endanleg dagskrá liggur fyrir.
