Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Ljósmyndir Andrésar Arnalds

16. september 2026

Mikinn fjölda mikilvægra ljósmynda úr sögu landgræðslustarfs á Íslandi síðustu hálfa öld er að finna í ljósmyndasafni sem Andrés Arnalds, fyrrverandi fagmálastjóri Landgræðslunnar, hefur afhent Landi og skógi til eignar og varðveislu. Myndirnar geyma mikilvægar heimildir og verða nýttar meðal annars til fræðslu- og kynningarstarfs.

Andrés Arnalds ungur við rofabarð með Bláfell í baksýn. Ljósmynd úr safni Andrésar.

Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, tók formlega við safninu 20. júní í sumar með því að þeir Andrés undirrituðu gjafagerning þess efnis. Þar með afhenti Andrés Landi og skógi til eignar og varðveislu þær ljósmyndir sem hann hefur tekið á umliðnum áratugum og tengjast landgræðslustarfinu.

Í safninu eru skyggnur og ljósmyndir á pappír en einnig stafræn afrit mynda sem Edda Linn Rise, skjalastjóri Lands og skógar, hefur unnið samkvæmt viðteknum kröfum um afritun og varðveislu slíks efnis. Safnið hefur að geyma miklar heimildir um landgræðslustarf á Íslandi, gróðurframvindu, verklag við landgræðslustarf og almenna sögu sem tengist því starfi.

Samkvæmt samkomulaginu er Landi og skógi heimilt að nýta myndasafnið í þágu fræðslu, rannsókna, útgáfu og kynningarstarfs á sínum vegum að því tilskildu að Andrésar sé ávallt getið sem myndhöfundar.

Land og skógur þakkar Andrési höfðinglega gjöf. Hjá stofnuninni verður áfram unnið að því að tryggja varðveislu þessara mynda með því að koma þeim á stafrænt form, merkja og gera aðgengilegar til notkunar. Það sama gildir um fleiri myndasöfn sem eru í eigu stofnunarinnar. Þar er mikið verk enn óunnið en öll eru þessi söfn mikilvægur sögulegur og þekkingarlegur brunnur að sækja í, til dæmis til að sýna fram á árangur í starfi Lands og skógar að landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis.

Myndir segja gjarnan meira en mörg orð. Þess vegna felast mikil tækifæri í því að finna til gamlar myndir sem sýna ástand lands og taka nýjar myndir á sömu stöðum. Fátt sýnir á augljósari hátt þær jákvæðu breytingar á gróðurfari landsins sem orðið geta með góðu landbótastarfi.

Hjónin Guðrún Pálmadóttir og Andrés Arnalds árið 2011 þegar Andrés var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Ljósmynd: Gunnar Vigfússon.