LÍSA heimsækir Land og skóg
15. september 2026
Rúmlega þrjátíu félagar úr Landupplýsingafélagi Íslands heimsóttu Land og skóg nýverið og fengu að kynnast fjölbreyttum verkefnum og lausnum sem starfsfólk Lands og skógar vinnur að á sviði landupplýsinga.

Atli Guðjónsson, verkefnastjóri landupplýsinga, ávarpar samstarfsfólk og gesti. Ljósmynd: Fífa Jónsdóttir.
Landupplýsingafélag Íslands, LÍSA, er fagfélag þeirra sem starfa með eða hafa áhuga á landupplýsingum og landupplýsingatækni. Félagið stuðlar að aukinni þekkingu, samstarfi og miðlun reynslu í faginu, meðal annars með ráðstefnum, fræðslufundum og vinnustaðaheimsóknum.
Gestirnir komu í heimsókn til Lands og skógar fimmtudaginn tíunda september í nýja starfstöð stofnunarinnar í Reykjavík sem er til húsa við Vínlandsleið í Grafarholti. Atli Guðjónsson, verkefnastjóri á sviði rekstrar, fjármála og stafrænnar þróunar, segir að í heimsókninni hafi starfsfólk stofnunarinnar kynnt gestunum fjölbreytt verkefni, gögn og tæknilausnir sem tengjast landupplýsingum. Gestir fengu þannig innsýn í hvernig landupplýsingar eru nýttar í ólíkum verkefnum stofnunarinnar og hvernig unnið er að þróun lausna fyrir bæði starfsfólk og notendur gagna.
Atli segir að heimsóknin hafi verið bæði fróðleg og skemmtileg og með henni hafi skapast gott tækifæri til samtals, miðlunar reynslu og umræðu um þróun landupplýsingamála. Land og skógur þakkar LÍSU og öllum sem komu í heimsókn kærlega fyrir komuna og ánægjulega samveru.
Meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð. Þær tók Fífa Jónsdóttir.
